Margir nýbakaðir foreldrar þekkja það af höfuðverkjum og svefnlausum nóttum hversu erfitt getur verið að fást við eyrnabólgu hjá nýburum og smábörnum. Litlu krílin engjast þá um af sársauka uns hljóðhimnan springur eða rör eru sett í með svæfingaraðgerð. Íslendingar kunnu gott ráð við eyrnaverk á fyrri öldum sem Jónas Jónasson frá Hrafnagili ritaði um í bók sína Íslenskir þjóðhættir. Þar segir: „(Verkurinn) batnar við að láta seyði af súru eða hvönn í eyrað, eða tíkarmjólk, eða hrútsgall. Þá er og besta ráð að bræða merg úr tarfi og láta drjúpa í eyrað, eða taka volgt geitarhland, eða feiti þá sem er milli augnanna í refum og láta drjúpa í eyrað. Þá skal taka kálfsmerg með kattarhári og konumjólk í eyrað, eða láta kattargall eða geitarmjólk drjúpa í það.“