fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Fréttir

Yfirlæknir segir að við verðum að bæta okkur – Að öðrum kosti verði afturför til tíma síðari heimsstyrjaldarinnar

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 18. nóvember 2021 09:00

Sveppasýkingar geta verið mjög slæmar og slæmt ef ekki er hægt að nota sýklalyf gegn þeim.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði embættis landlæknis, segir að skynsamleg notkun sýklalyfja sé lykilatriðið til að stemma stigu við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

Fréttablaðið skýrir frá þessu en í dag er Evrópudagur vitundarvakningar um sýklalyf. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO og fleiri alþjóðlegar stofnanir hafa lýst því yfir að sýklalyfjaónæmi sé ein mesta heilbrigðisógnin sem mannkynið standi frammi fyrir í dag.

„Sýklalyf voru tímamótauppgötvun og ef við verðum ónæm fyrir þeim erum við komin aftur til baka fyrir síðari heimsstyrjöldina þar sem fólk dó úr sýkingum af sári eða lungnabólgu,“ segir Anna Margrét og bendir á að skynsamleg notkun sýklalyfja sé lykilatriðið í að stemma stigu við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

Árlega látast um 33.000 manns í Evrópu vegna sýkinga af völdum baktería sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum. „Því er mikilvægt að læknar noti sýklalyf með markvissum hætti, en sýnt hefur verið að bæði heildarnotkun sýklalyfja og hvernig þau eru notuð hefur áhrif á sýklalyfjaónæmi,“ segir Anna Margrét.

16% fækkun varð á ávísunum á sýklalyfjum hér á landi á milli áranna 2019 og 2020. Á síðasta ári var heildarfjöldi ávísana slíkra lyfja á hverja þúsund íbúa 505 en á tímabilinu 2015-2019 var meðalfjöldi ávísana 670 á hverja þúsund íbúa árlega.

Þennan árangur má þakka átaki sem var gert í fræðslu lækna og heilbrigðisstarfsfólks um notkun sýklalyfja en einnig koma auknar sóttvarnir vegna kórónuveirufaraldursins við sögu. „Fræðslan felur í sér mikilvægi þess að ávísa sýklalyfjum skynsamlega. Sýklalyf eru ekki notuð við veirusýkingum eins og kvefi og flensu,“ segir Anna Margrét og benti á að ef sýklalyf séu notuð á rangan hátt sé verið að auðvelda ónæmum bakteríum að vaxa og taka yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna