fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fókus

350 börn spreyttu sig á að talsetja Tulipop teiknimynd

Fókus
Miðvikudaginn 10. nóvember 2021 09:29

Myndir/Mummi Lú

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 350 börn spreyttu sig á að talsetja teiknimyndir um helgina í opnum áheyrnarprufum fyrir hlutverk í nýrri Tulipop teiknimyndaþáttaröð sem fer í sýningar í Sjónvarpi Símans Premium í byrjun nýs árs.

Umboðsskrifstofa leikara, Móðurskipið, hafði umsjón með prufunum í samstarfi við Tulipop Studios sem er framleiðandi teiknimynda þáttaraðarinnar „Margt býr í Tulipop“, en um er að ræða nýja metnaðarfulla íslenska teiknimynda þáttaröð sem byggir á hinum ástæla Tulipop ævintýraheimi.

Helga Árnadóttir hjá Tulipop, Gunnar Árnason hjá stúdíóinu Upptekið, Sigvaldi J. Kárason leikstjóri, Signý Kolbeinsdóttir hjá Tulipop og María Hrund Marinósdóttir hjá Móðurskipinu. Mynd/Mummi Lú

Allir krakkar sem mættu spreyttu sig á að tala og syngja fyrir Tulipop persónurnar Búa, Gló, Maddý og Fredda og var mikið líf og fjör í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni þar sem prufurnar voru haldnar og húsið fullt af hæfileikaríkum börnum.

Áætlað er að búið verði að velja í hlutverkin fyrir lok nóvember og raddupptökur fara svo fram í framhaldinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Í gær

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi