fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Fauk í Eddu Falak þegar hún fékk þessi skilaboð í vinnunni – „Þannig byrjaði þetta“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 18. maí 2021 20:55

Edda Falak. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttakonan, áhrifavaldurinn og aktívistinn Edda Falak hefur vakið mikla athygli hér á landi að undanförnu. Edda hefur verið mikið í sviðsljósinu í #MeToo bylgjunni sem hefur geisað síðustu vikur. Edda var á dögunum gestur í útvarpsþættinum Sunnudagssögur á Rás 2 þar sem hún ræddi meðal annars um það hvernig hún byrjaði í aktívisma.

Edda stundaði nám við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með gráðu í viðskiptafræði. Í kjölfarið flutti hún til Kaupmannahafnar og fór þar í framhaldsnám. Í því námi var hún ein af fáum konum en stuttu eftir að hún lauk því námi byrjaði hún að vinna í fjármáladeild í stóru fyrirtæki í Danmörku.

Hlutabréf og bikinímyndir

Um sama leyti byrjaði Edda að birta myndir á samfélagsmiðlum. Umræddar myndir vöktu umtal þar sem hún var fáklædd á þeim. „Ég geri stelpulega hluti á Instagram, pósta myndum af mér á bikiníinu og geri alls konar fimleika og er fáklædd, á sama tíma og ég er í virtri stöðu í fjármálafyrirtæki,“ segir Edda en fljótlega fékk hún skilaboð sem fóru ekki vel í hana.

„Þú getur ekki verið með mikilvæga kúnna þar sem þú ert að „treida“ hlutabréfum á meðan þú ert á Instagram á bikiníinu,“ var álit sem margir virtust hafa í kringum Eddu á þessum tíma. Þá fann hún fyrir því að ekki var hlustað á hana á fundum í vinnunni og svo virtist vera sem skoðanir hennar hefðu ekki jafn mikið vægi og skoðanir annarra.

„Það fauk í mig“

Edda segir að síðan hafi hún fengið skilaboð þar sem henni var bent á að breyta því hvernig hún klæddi sig svo hún yrði frekar tekin alvarlega. Edda var ekki sátt með þessi skilaboð og mótmælti þeim. „Það fauk í mig því mig langaði að gera bæði,“ segir hún í þættinum.

Á Instagram lét hún skoðanir sínar á þessu óréttlæti flakka og fann þá fyrir miklum stuðningi frá öðrum konum. „Þannig byrjaði þetta,“ segir hún. „Þú getur gert bæði og þú ert ekki að lítillækka þig með því að birta mynd af þér á bikiníinu.“

Eftir þetta hætti hún í vinnunni í fjármáladeildinni hjá fyrirtækinu og flutti heim til Íslands. Hér hélt hún áfram að leggja stund á aktívismann og hefur hún fengið mikla athygli fyrir það, sérstaklega undanfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short