Anya Taylor-Joy er ein eftirsóttasta leikkona heims um þessar mundir eftir að hafa leikið í Netflix-þáttunum The Queen’s Gambit. Þættirnir slógu áhorfsmet og virðast allir vera æstir í að vita meira um þessa frábæru leikkonu.
Anya talar spænsku reiprennandi og lærði ekki ensku fyrr en hún var átta ára gömul. Anya fæddist í Flórída en flutti til Búenos Aíres þegar hún var smábarn með foreldrum sínum, móðir hennar er af spænskum ættum. Anya talaði spænsku þar til hún var átta ára og fjölskyldan flutti til London, þessi breyting reyndist henni erfið.
Anya neitaði að tala ensku eftir að hún flutti til London. Að læra nýtt tungumál getur verið erfitt, en ástæðan fyrir því að hún harðneitaði að tala tungumálið var ekki vegna erfiðleika, heldur því hana langaði að flytja aftur til Argentínu. Hún trúði því að ef hún myndi ekki læra að tala ensku, þá myndi fjölskyldan enda með að flytja aftur heim. Brögð hennar virkuðu ekki og endaði hún með að fara í skóla í Bretlandi.
Þegar Anya sætti sig loksins við að hún þyrfti að læra ensku fékk hún aðstoð frá galdradrengnum Harry Potter og bókunum um hann. Harry Melling, sem lék Dudley í Harry Potter-myndunum, var mótleikari Anyu í The Queen‘s Gambit og viðurkennir hún að hafa verið með stjörnur í augunum þegar hún hitti hann fyrst.
Þetta hljómar eins og eitthvað úr hasarmynd, vélbátakappsiglingamaður. En faðir hennar var ekki alltaf í svona spennandi starfi, hann var bankamaður fyrir það. Örugglega ekki leiðinlegt að svara spurningunni: „Hvað gerir pabbi þinn?“
Í The Queen‘s Gambit er Anya með bandarískan hreim, en leikkonan sjálf er með hreim sem er ansi erfitt að staðsetja. Eins og kemur fram hér að ofan bjó Anya í Argentínu til átta ára aldurs, hún flutti síðan til London og dvaldi þar til fjórtán ára aldurs. Þá flutti hún til New York og þar með er hreimur hennar einhvers konar blanda af hreimum frá ólíkum heimshornum.
Þegar Anya var unglingur var hún uppgötvuð sem fyrirsæta. Hún var á gangi fyrir utan verslun þegar hún var sextán ára gömul. Útsendari í leit að fyrirsætum bauð henni á fund, sami útsendari og uppgötvaði ofurfyrirsætuna Kate Moss.
Anya þykir áberandi í útliti og er talin einstaklega falleg. En hún er ekki sammála. Um tíma forðaðist hún spegla og segir að hún hafi aldrei og heldur að hún muni aldrei, sjá sig sjálfa sem fallega.
Það kemur kannski mörgum á óvart, en Anya er náttúrulega ljóshærð. Rauðu lokkarnir fara henni svo vel í The Queen‘s Gambit og hún sportar svörtu síðu hári í kvikmyndunum Split, Glass og Radioactive.
Anya vissi alltaf að hana langaði til að verða leikkona. Hún hætti í skóla þegar hún var sextán ára til að elta drauma sína en það tók tíma fyrir hana að fá hlutverk. Á þeim tíma starfaði hún sem fyrirsæta og í einni myndatökunni hitti hún Alan Leech úr Downton Abbey. Þau náðu vel saman og hann reddaði henni fyrstu stóru áheyrnarprufunni.
Þó að ástríða hennar fyrir leiklist hafi verið aðalástæðan fyrir því að hún hafi hætt í skóla, þá spilaði það vissulega inn í hversu mikið hún hataði skólann. Hún átti ekki marga vini, var lögð í einelti og leið almennt mjög illa í skóla.