fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Rikki G segir að Valur sé að fá íslenskan landsliðsmann heim

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 16. desember 2020 12:42

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Freyr Skúlason er á leið heim í Val ef marka má Ríkharð Óskar Guðnason fréttamann á Stöð2. Ari Freyr ólst upp hjá Val áður en hann fór í atvinnumennsku.

Ari er 33 ára gamall en hann leikur í dag með Oostende í Belgíu en hann hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2006.

Hann hefur leikið í Svíþjóð, Danmörku og svo í Belgíu frá árinu 2016.

„Það eru heldur betur fréttir. Ég hugsa að deildin næsta sumar verði rosaleg,“ sagði Rikki G í hlaðvarpsþætti á Vísir.is í dag.

„Ég fór aðeins á stúfana í gær og heyrði frá mjög svo áreiðanlegum manni sem er mjög vel tengdur Hlíðarenda að Valsmenn eru búnir að tala við og undirstinga það að Ari Frey Skúlason mæti heim næsta sumar.“

Ari Freyr hefur verið lykilmaður í landsliði Íslands um langt skeið og fór með liðinu á bæði EM og HM.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?