fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Matur

Truflaðar vegan súkkulaðitrufflur sem bráðna í munni

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 28. nóvember 2020 10:30

Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matarbloggarinn og grænkerinn Þórdís Ólöf segir að leyndarmálið á bak við góðan vegan-bakstur liggi einfaldlega bara í gleðinni og viljanum til að prófa sig áfram.

Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir hefur verið grænkeri síðan 2016. Hún heldur úti vinsæla matarblogginu Graenkerar.is og samnefndri Instagram-síðu. Það er ekkert mál að njóta hátíðanna og öllu því sem fylgir þó þú sért vegan. Þú getur prófað þig áfram með nýjar uppskriftir eða breytt gömlum uppskriftum svo þær séu vegan. Aðspurð hvernig það er hægt, segir Þórdís að það séu vanalega nokkur hráefni sem þarf að skipta út til að „veganæsa“ uppskrift.

Þórdís Ólöf deilir með okkur uppskrift að gómsætum vegan súkkulaði trufflum.

Prófaðu nýtt um jólin

„Nota má vegan smjör, vegan mjólk og vegan rjóma í stað kúasmjörs, kúamjólkur og kúarjóma. Eggjum er almennt auðvelt að skipta út fyrir banana, chia fræ eða hörfræjamjöl, en ef uppskriftin kallar á þeyttar eggjahvítur er hægt að þeyta safann af kjúklingabaunum í dós, en þannig má til dæmis búa til vegan marengs. Svo eru ýmis önnur hráefni sem koma á óvart í bakstri og má til dæmis gera súkkulaðikökur úr svartbaunum eða sætum kartöflum. Nú orðið er hægt að finna vegan útgáfur af langflestum uppskriftum á netinu, en ég mæli líka með að vera óhrædd við að prófa að yfirfæra ykkar uppáhaldsuppskriftir í vegan búning,“ segir hún.

„Flest höfum við alist upp við bakstur sem kallaði á smjör, egg og mjólk, en það er ekkert sem segir að það sé rétta leiðin til að baka. Hvers vegna ekki að prófa nýjar leiðir til að gera sama hlutinn? Við sjálf, umhverfið og dýrin njótum góðs af.“

Hvað finnst þér skemmtilegast að baka í kringum hátíðarnar?

„Ég er mikið jólabarn og elska að baka og elda fyrir jólin. Skemmtilegast finnst mér að baka vegan sörur, en ég nota þeyttan kjúklingabaunasafa í botnana. Einnig er ég forfallinn súkkulaðiaðdáandi og reyni að gera konfekt fyrir hver jól, til að eiga og gefa. Í lok nóvember sameinum við mamma gjarnan krafta okkar og útbúum hnetusteik og vegan útgáfu af hangikjöti fyrir jólin, en okkur finnst gott að vera tímanlega í því,“ segir Þórdís.

Aðsend mynd.

Vegan súkkulaðitrufflur

Truflaðar vegan súkkulaðitrufflur sem bráðna í munninum. Frábærar til að eiga með kaffinu yfir hátíðirnar, eða sem heimagerð jólagjöf fyrir vini og ættingja. Í uppskriftina er notað silken tófú sem er sérstök tegund af tófú og gefur trufflunum silkimjúka áferð.

  • 300 g suðusúkkulaði
  • 100 g vegan smjör
  • 1 dl kakósmjör
    • Má skipta út fyrir vegan smjör
  • 300 g silken tófú
    • Sérstök tegund af tófú sem er mýkri en hefðbundið tófú
  • Salt eftir smekk
  • 1 dl kakóduft
Aðsend mynd.
  1. Bræðið suðusúkkulaði, vegan smjör og kakósmjör í potti við vægan hita.
  2. Setjið súkkulaðiblönduna í blandara ásamt tófúinu og saltinu og blandið þar til silkimjúkt.
  3. Setjið blönduna í lokað ílát og kælið inni í ísskáp í 2-3 klst. eða þar til blandan hefur stífnað.
  4. Mótið litlar kúlur úr blöndunni og veltið þeim upp úr kakódufti. Raðið trufflunum í box og geymið í kæli eða frysti.
  5. Trufflurnar eru bestar ef þær hafa fengið að mýkjast í smástund við stofuhita eftir að þær eru teknar út úr kæli.
  6. Prófið að bæta einu espresso-skoti út í blönduna fyrir dásamlegar súkkulaðitrufflur með kaffibragði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa