fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stjórn Magna lýsir yfir stuðningi við KR: „Stjórn KSÍ ekki haft heildarhagsmuni íslenskrar knattspyrnu í huga“

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 31. október 2020 14:43

Frá Laugardalsvelli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn íþróttafélagsins Magna frá Grenivík lýsir yfir stuðningi við ákvörðun KR um að vísa ákvörðun stjórnar KSÍ um að hætta keppni í Íslands- og bikarmótum til áfrýjunardómstóls sambandsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag.

Í yfirlýsingunni segir meðal annars að stjórn Magna telji að Knattspyrnusamband Íslands hafi ekki haft heildarhagsmuni íslenskrar knattspyrnu í huga þegar ákvörðunin hafi verið tekin.

Yfirlýsing Íþróttafélagsins Magna í heild sinni:

Stjórn Íþróttafélagsins Magna á Grenivík harmar þá ákvörðun stjórnar KSÍ, dags. 30. október 2020, að hætta keppni í Íslandsmótum-og bikarkeppni KSÍ.

Að mati stjórnar Magna hefur stjórn KSÍ ekki haft heildarhagsmuni íslenskrar knattspyrnu í huga, sem henni þó ber, og ákvörðunin því sem slík andstæð hlutverki stjórnar KSÍ.

Stjórn Magna lýsir yfir stuðningi við þann málflutning og málatilbúnað sem stjórn knattspyrnudeildar KR hefur haft uppi undanfarna daga og styður ennfremur þá ákvörðun KR að vísa ákvörðun stjórnar KSÍ til áfrýjunardómstóls sambandsins. Líkt og KR, telur Magni verulegan vafa leika á því hvort ákvörðun stjórnar KSÍ standist lög sambandsins og leyfir sér að vona að áfrýjunardómstóll sambandsins felli ákvörðunina úr gildi.

Stjórn Íþróttafélagsins Magna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum