Hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins verða kynntar í dag. Ríkisstjórnin hefur fundað síðan níu í morgun í Ráðherrabústaðnum og eru að fara yfir minnisblað Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnarlæknis um tillögur að aðgerðum.
Í framhaldinu verður boðað til blaðamannafundar þar sem ráðherrar og þríeykið kynna hertar aðgerðir og sitja fyrir svörum. En hefur ekki verið boðað til fundarins svo óljóst er hvenær hann mun hefjast. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði þó í útvarpinu í morgun að fundurinn yrði öðru hvoru megin við hádegið.
Í samtali við RÚV í morgun sagði Katrín þó að aðgerðirnar muni ekki fela í sér útgöngubann heldur verða hertar aðgerðir á þeim sviðum sem takmarkanir gilda þegar um.
Uppfært: 11:18
Blaðamannafundur verður haldinn klukkan 13:00 í dag.