fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Daði og Gagnamagnið verða fulltrúar Íslands í Eurovision 2021

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 23. október 2020 11:13

Daði og Gagnamagnið. Ljósmyndari: Baldur Kristjáns

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision-söngvakeppninni í Rotterdam í maí. RÚV leitaði til Daða Freys sem samþykkti að semja lag í keppnina.

Daði greinir einnig frá þessu sjálfur á Twitter.

„Ég mun snúa aftur á næsta ári og Gagnamagnið með mér,“ segir Daði og bætir við að hann þurfi nú að skrifa nýtt Eurovision lag.

Lagið Think About Things með Daða og Gagnamagninu sigraði Söngvakeppnina 2020 en vegna COVID-19 var hætt við Eurovision sem átti að fara fram í Rotterdam. Lagið sló þó heldur betur í gegn en það hefur nú þegar þetta er skrifað verið spilað tæplega 55 milljón sinnum á Spotify. Lagið vann áhorfendaverðlaunin í mörgum löndum Evrópu, m.a. í öllum hinum norrænu löndunum.

Það eina rétta í stöðunni

Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV er ánægður með að Daði Freyr hafi þekkst boðið um að taka aftur þátt.

„Daði sigraði Söngvakeppnina 2020 með yfirburðum og viðtökurnar við íslenska framlaginu hafa aldrei verið svona góðar. Við erum því afar ánægð og stolt af því að geta sent þennan frábæra tónlistarmann og hans fólk út eins og til stóð að gera síðast. Auðvitað þurfti að skoða margt þegar þessi ákvörðun var tekin en eftir mikla umhugsun fannst okkur þetta það eina rétta í stöðunni, ekki síst í ljósi hinnar fordæmalausu stöðu sem upp kom í ár að engin Eurovision-keppni hafi verið haldin í fyrsta skipti í sögunni. Okkur fannst það bæði rétt og sanngjarnt,“ segir Skarphéðinn og bætir við:

„Við teljum að þjóðin vilji eindregið að Daði og Gagnamagnið keppi fyrir okkar hönd í þessari keppni. Auk þess er óvissan svo mikil í dag að það er ekki einu sinni víst að við getum haldið Söngvakeppni í febrúar með almennilegum hætti.“

Mest gaman að vinna

Daði Freyr er afar spenntur fyrir því að fá að standa á Eurovision-sviðinu:

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Ástæðan fyrir því að ég keppti í Söngvakeppninni 2020 var til að prófa að fara með Gagnamagnskrökkunum að upplifa Eurovision innan frá. Við stefndum alltaf að því að sjá hversu langt við gætum komist í keppninni og það verður eins á næsta ári. Allt Gagnamagnið verður með. Aðalatriðið í þessu er að það verði gaman en ég held að það sé mest gaman að vinna. Nú vona ég bara að það verði haldin alvöru keppni,“ segir hann.

En er hann búinn að semja lagið?

„Ég er kominn með nokkrar pælingar varðandi lagið en ekkert sem er ákveðið. Ég veit reyndar hvernig tónlistarmyndbandið verður og er með nokkur lykilatriði sem þurfa að koma fram í sviðsetningunni, svo ég mun semja lagið í kringum það. Ég mun reyna að semja lag sem passar við atriðið en ekki öfugt, Júró er alveg sér dæmi. En þetta verður stuðlag, það er alveg á hreinu. Allt sem er gaman!“

Vegleg tónlistardagskrá í undirbúningi

Það er því ljóst að það verður engin Söngvakeppni á næsta ári. Keppnin hefur verið með allra stærstu sjónvarpsviðburðum landsins síðustu ár en Skarphéðinn biður aðdáendur keppninnar að örvænta ekki. „Við verðum að sjálfsögðu með öfluga tónlistardagskrá í febrúar og mars, á þeim tíma sem Söngvakeppnin hefði farið fram og sú dagskrá mun að einhverju leyti tengjast Söngvakeppninni og Eurovision,“ segir hann. Þegar er hafinn undirbúningur að veglegri dagskrá þar sem tónlist og skemmtun verða í öndvegi.

Eurovision-söngvakeppnin verður í Rotterdam 18., 20. og 22. maí 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga
Fókus
Í gær

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra