Rétt í þessu var fundi borgarstjórnar slitið vegna kórónuveirufaraldursins. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hóf fundinn á að fara yfir stöðu mála í ljósi nýjustu þróunar faraldursins hér á landi og sleit í kjölfarið fundi og var öllum málum frestað. Einhugur ríkti í borgarstjórn með þetta fyrirkomulag.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi, greinir frá þessu á Facebook.
„Í gær greindust 99 smit og voru langflest þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Gripið hefur verið til umfangsmikilla sóttvarnaraðgerða og helgina, sem við eigum von á að verði ennþá umfangsmeiri í dag. Það er því ljóst að það mun koma til fleiri breytinga á þjónustu borgarinnar þegar auglýsing heilbrigðisráðherra um hertar aðgerðir mun liggja fyrir.“
Sigurborg segir að neyðarstjórn Reykjavíkurborgar hafi verið að störfum síðan um helgina og sé að vænta leiðbeiningum frá henni innan skamms.
„Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar hefur starfað frá því um helgina og mun hún gefa út leiðbeiningar um leið og auglýsing heilbrigðisráðherra hefur tekið gildi. Reykjavíkurborg mun upplýsa um stöðu mála og helstu aðgerðir vegna þessarar þróunar á heimasíðu borgarinnar“
Sigurborg hrósar starfsfólki borgarinnar sem hún segir hafa leyst erfið verkefni síðust daga.
„Það er einstakur metnaður og alúð sem framlína okkar starfsfólks leggur í störf sín. Stjórnendur eru að gera allt sem hægt er til að tryggja að það verði órofin starfsemi í nauðsynlegri velferðarþjónustu, heilbrigðisþjónustu og skólum.
Markmiðið er að draga úr útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. Þar er samvinna með borgarbúum lykilatriði. Við förum saman í gegnum þessar vikur.“