Faiq er nefnilega frændi soldánsins í Brunei, Hassanal Bolkiah, og er einn af erfingjum ríkidæmis hans. Ríkidæmi soldánsins er metið á 22 milljarða punda sem eru tæpar fjórar billjónir í íslenskum krónum. The Sun segir Faiq vera „ríkasta knattspyrnumann heims“ vegna þessa.
Faðir Faiq, Jefri Bolkiah, er bróðir soldánsins og því er Faiq afar náskyldur honum. Þrátt fyrir að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af peningum vildi Faiq reyna fyrir sér í boltanum og hefur honum tekist ágætlega í því.
Árið 2009, þegar Faiq var 11 ára gamall, skrifaði hann undir eins árs samning hjá akademíu Southampton á Englandi. Honum gekk ekki nógu vel þar til að fá langtímasamning en fór á reynslu hjá Arsenal. Eftir það ákvað Chelsea að fá Faiq til sín til tveggja ára. Hann stoppaði þó stutt og fór til Leicester en það var í desember árið 2015. Þar hefur hann verið síðustu ár en nú liggur leiðin hans til Portúgal.
Þrátt fyrir að hafa ekki spilað leik fyrir aðallið á Englandi hefur Faiq spilað 9 leiki með landsliði Brunei og skorað eitt mark í þeim leikjum. Faiq fæddist í Los Angeles í Bandaríkjunum og hefði því getað spilað með bandaríska landsliðinu en hann ákvað frekar að spila með Brunei.
Faðir Faiq hefur verið þekktur sem glaumgosi fjölskyldunnar. Hann er sagður hafa eytt 35 milljónum punda, rúmlega 6 milljörðum íslenskra króna, á einum mánuði í bíla, úr, penna og kareókí partý. Faðir hans er einnig sagður hafa átt 2.300 bíla á einum tímapunkti, þar á meðal fullt af bílum frá Bentley, Ferrari og Rolls-Royce. Þá eyddi hann eitt sinn 5 milljónum punda, um 885 milljónum íslenskra króna, í teppi sem var vafið með gull þræði og gimsteinum
Þegar faðir Faiq var að fagna fimmtugsafmælinu sínu vildi hann gera eitthvað sérstakt fyrir son sinn sem var þá 7 ára gamall. Hann ákvað því að fá tónlistarmanninn Michael Jackson til að koma og skemmta í einkasamkvæmi fjölskyldunnar. Það er sagt hafa kostað um 12 og hálfa milljón punda, eða um 2 milljarða íslenskra króna.