fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Innréttingar og tæki eru með lausnirnar fyrir sumarhúsið

Kynning
Kynningardeild DV
Laugardaginn 23. maí 2020 10:00

Íris Jensen tók við rekstri fyrirtækisins ásamt eiginmanni sínum árið 2014. Mynd/Valli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarbústaðir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Furan var áberandi í húsasmíðinni á tímabili en fær nú að víkja fyrir nýtískulegri efnum, svo sem steypu og gleri.

Litapallettan hefur sömuleiðis breyst og víkur nú krómið og hvíti liturinn fyrir möttum, gráum og svörtum litatónum. „Tískan í hreinlætistækjum er virkilega spennandi í dag, hvort sem á við sumarhús eða bara heimili almennt. Litir eru að koma sterkar inn og fjölbreytnin er mikil,“ segir Íris Jensen, sem rekur fyrirtækið með eiginmanni sínum, Grétari Þór Grétarssyni. Sérvöruverslunin Innréttingar og tæki byggir á eldri grunni, frá því þegar umboðs- og heildsöluverslunin Jensen, Bjarnason & Co var stofnuð árið 1945. „Frá árinu 1993 höfum við sérhæft okkur í sérvörum, smáhlutum, innréttingum og hreinlætistækjum fyrir baðherbergið frá Spáni og Ítalíu. Þá seljum við mikið til einstaklinga og iðnaðarmanna sem og fyrirtækja og stofnana, enda er vöruúrvalið afar breitt og við erum með umboð fyrir ýmis spennandi merki. Þá eigum við meðal annars frábært úrval af bæði innréttingum og hreinlætistækjum fyrir sumarhúsaeigendur.“

Innréttingar og tæki er með frábært úrval af sturtuklefum.

Vinsælir sturtuklefar

Innréttingar og tæki er með fjölda hentugra sturtuklefa fyrir sumarhúsið. „Við byrjuðum að flytja inn glæsilega matta, svarta sturtuklefa í desember í fyrra sem seldust upp á einni viku hjá okkur. Þessi týpa hefur verið mjög vinsæl í bæði Svíþjóð og Noregi. Nú er von á stórri sendingu hjá okkur af þessum fallegu sturtuklefum. Einnig eigum við gott úrval af öðrum sturtuklefum á breiðu verðbili sem henta sérlega vel í sumarbústaði af öllum stærðum og gerðum.“

Mattur og svartur sturtuklefi er flott viðbót í sumarbústaðinn.

Spænskir gæðasturtubotnar

Vinsældir Gala sturtubotnanna frá Innréttingum og tækjum fara hvergi þverrandi. „Þetta er virkilega flott og stílhrein lausn fyrir þá sem hafa úr aðeins meira plássi að moða. Um er að ræða sterkbyggða og endingargóða sturtubotna úr granít/stonex/ resin-efni. Botnarnir koma í fimmtán litum og eru sérstaklega gerðir fyrir opnar sturtur sem hægt er að ganga inn í. Botnarnir eru afar einfaldir og þægilegir í uppsetningu og koma tilbúnir í einu stykki með innbyggðum halla. Þá er til dæmis sérlega einfalt að setja þá upp á trégólfi sem prýðir margan bústaðinn. Engin þörf er heldur á fúgu þar sem engar flísar eru, sem einfaldar öll þrif til muna. Botnarnir eru þaktir stamri gelkvoðu sem gerir þá að stöðugu undirlagi fyrir fólk að ganga á og athafna sig. Þá eigum við líka mikið úrval af glerveggjum í ýmsum stærðum og gerðum, sem passa með sturtubotnunum góðu. Við erum til dæmis með fasta glerveggi með lausum væng fyrir minni rými svo þau nýtist til fullnustu.“

Gala sturtubotnarnir eru vinsælir.

Forláta handklæðaofnar sem prýða

Undanfarin ár hafa dúkkað upp skemmtilegar nýjungar í hönnun baðherbergja og er verslunin Innréttingar og tæki ávallt með puttann á púlsinum þegar kemur að spennandi og fallegum baðherbergislausnum. „Við eigum til að mynda mikið úrval af flottum handklæðaofnum sem ganga fyrir rafmagni og henta sérstaklega vel í sumarhús á landi þar sem heitavatnsrennsli er af skornum skammti. Þeir fást í öllum litum af Ral litakortinu, allt frá látlausum gráum eða króm upp í appelsínugulan og jafnvel bleikan.“

Litskrúðugir handklæðaofnar, skemmtilegir í sumarbústaðinn.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á jensenbjarnason.is

Ármúli 31, 108 Reykjavík

Sími: 588-7332

Tölvupóstfang: i-t@i-t.is

Opið alla virka daga frá 9–18.

Lokað á laugardögum í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum