fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Glæpsamlegt framferði bílstjóra sem stakk af á hlaupum eftir harða ákeyrslu – DV ræðir við móður þolandans

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 27. apríl 2020 13:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Tengdadóttir mín er með fatla, hún fékk líka þungt högg og er með rosalegan höfuðverk. Syni mínum er illt í hnénu. En þeim líður í sjálfu sér ágætlega og guð sé lof þá virðast þau hafa sloppið vel frá þessu. Eru óbrotin en vonandi kemur ekki eitthvað alvarlegt í ljós síðar. Svona áverkar geta verkið mjög lúmskir,“ segir móðir ungs manns sem lenti ásamt unnustu sinni í hörðum árekstri um ellefuleytið á laugardagskvöld. Bílstjóri jepplings keyrði á þau.

Atvikið átti sérstað rétt hjá Grillhúsinu á Sprengisandi, á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.

„Jepplingurinn skall á þeim en bílstjórinn og farþegi hans stungu af frá vettvangnum á hlaupum,“ segir móðirin.

Móðirin óskar þess annars vegar að fólk sendi syni hennar og tengdadóttur hlýja strauma og hins vegar að allir sem kunna að hafa upplýsingar um atvikið eða eitthvað því tengt hafi samband við lögreglu.

Meðfylgjandi eru myndir af vettvangi. Á annarri þeirra sést bílstjórinn sem flýði af vettvangi en hann er hulinn á myndinni af persónuverndarástæðum.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“
Fréttir
Í gær

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu