fbpx
Fimmtudagur 22.maí 2025
Fréttir

Deilurnar um FVA – Fyrrum skólameistari skorar á stuðningsmenn Ágústu að koma fram undir nafni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég óska stuðningsmönnum Ágústu gleðilegra páska. Ég bendi þeim líka á að þau sem brigsla mér um „óstjórn á mörgum sviðum“ sýndu hugrekki ef þau kæmu fram undir nafni og stæðu fyrir máli sínu,“ þetta segir Atli Harðarson, fyrrum skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands í færslu á Facebook þar sem hann svarar fyrir ítrekaðar yfirlýsingar Ágústu Elínar Ingþórsdóttur um þann ólestur sem var á rekstri skólans er hún tók við störfum.

Í færslu sinni viðurkennir Atli að skólinn hafi verið skuldugur þegar hann lét af störfum árið 2014. Fyrir því hafi þó verið gildar ástæður. Skólinn hafi innritað nemendur umfram þann fjölda sem gert hafði verið ráð fyrir á fjárlögum árið 2008, líkt og venja hafi verið fyrir. Hafi þá umframnemendur verið bættir árið á eftir. Hins vegar, líkt og flestir muna, skall á kreppa og ríkissjóður því ekki í stöðu til að bæta umframnemendur.

„Kostnaðurinn við að kenna of mörgum var því skrifaður sem skuld skólans við ríkissjóð.“

Í stjórnartíð Atla var launakostnaður líka meiri en gekk og gerðist í íslenskum framhaldsskólum. Fyrir því voru þó eðlilegar ástæður. Mikill fjöldi starfsmanna var kominn á sérkjör vegna aldurs, starfsmannavelta var lítil og mikið um hærri launaflokka sökum starfsaldurs.

„Í tíð Ágústu var starfsmannavelta mjög mikil svo það fækkaði ekki aðeins þeim sem voru komnir yfir sextugt heldur líka þeim sem röðuðust ofar í launatöflu vegna starfsaldurs (en þær hækkanir fá flestir löngu fyrir sextugt).“

Eftir að Ágústa tók við þá hækkuðu framlög ríkisins fyrir hvern nemanda. Þessi hækkun átti meðal annars að nýtast til þess að bæta kjör starfsmanna skólans. Það var hins vegar ekki gert og þegar Ágústa skildi við starfið þá var enn í gildi vinnustaðasamningur sem Atli hafði gert á krepputímanum og kjör starfsmanna voru orðin töluvert lægri en við aðra framhaldsskóla .

„Aðdróttanir þess efnis að núverandi skólameistari, sem tók við í byrjun þessa árs, sýni ábyrgðarleysi með því að undirrita venjulegan vinnustaðasamning, líkan þeim sem gilda í öðrum skólum þessi misseri, eru því skrýtnar.

Menn geta metið það fyrir sig hvort það var mikið afrek að borga niður skuld skólans að þessu gefnu.“

Eins og fram hefur komið hefur nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands, Steinunn Inga Óttarsdóttir, náð samningum við kennara skólans sem hefur í för með sér verulegar kjarabætur fyrir kennarana.  Mikil ólga og átök einkenndu stjórnartíð Ágústu við skólann og lýstu kennarar skólans meðal annars yfir vantrausti á hana og kröfðust þess að skipunartími hennar yrði ekki lengdur. Í vörnum sínum hefur Ágústa ítrekað vísað til bágrar stöðu rekstrar skólans þegar hún tók við og hvernig henni hafi tekist að snúa rekstrarhalla yfir í rekstrarafgang.

Sjá einnig: Mikil ánægja sögð ríkja með Steinunni á Akranesi:„Fyrri skólameistari gat ekki klárað þetta á fimm árum“

Stuðningsmenn Ágústu hafa gagnrýnt stofnanasamning sem nýr skólameistari hefur gert og segja hann óábyrgan á þeim tímum sem nú eru uppi í þjóðfélaginu.

Sjá einnig: Deilurnar um FVA:Stuðningsfólk Ágústu segir umfjöllunina einhliða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skellinöðrukrakkar að æra fólk með hávaða – „Andskotans vespuhelvítin ykkar þið voruð að vekja barnið mitt“

Skellinöðrukrakkar að æra fólk með hávaða – „Andskotans vespuhelvítin ykkar þið voruð að vekja barnið mitt“
Fréttir
Í gær

Ágústa gekk hart fram gegn unglingsstúlkum sem maður hennar braut á – „Ég upplifði algjört hrun, af því að ég var búin að berjast svo mikið fyrir öllu“

Ágústa gekk hart fram gegn unglingsstúlkum sem maður hennar braut á – „Ég upplifði algjört hrun, af því að ég var búin að berjast svo mikið fyrir öllu“