fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Fókus

Þakkar fyrrverandi fyrir allan „Frasier peninginn“

Fókus
Mánudaginn 17. nóvember 2025 16:30

Myndir/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska raunveruleikastjarnan Camille Meyer þakkar sínum fyrrverandi, leikaranum Kelsey Grammer, fyrir allan peninginn sem hún fékk í skilnaðinum sem hann fékk fyrir geysivinsælu Frasier þættina.

Camille var um tíma ein af húsfreyjunum í The Real Housewives of Beverly Hills. Hún var síðan „vinkona húsfreyjanna“ í seinni þáttaröðum. Hún var stödd á BravoCon um helgina og þakkaði sínum fyrrverandi fyrir.

„Takk Kelsey Grammer, fyrir allan Frasier peninginn. Ég er að lifa mínu besta lífi,“ sagði hún. Frasier voru í loftinu frá 1993 til 2004.

Camille á tvær dætur með leikaranum, Mason, 23 ára, og Jude, 20 ára.

„Krökkunum gengur vel. Ég meina, Mason var að eignast fallegan bíl, Jude er að ferðast um Evrópu. Þetta er dásamlegt.“

Camille og Kelsey skildu árið 2011 eftir þrettán ára hjónaband.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist

Bonnie Blue handtekin í Balí og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist