fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Selfie.is: Myndar gleðina í þinni veislu!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 28. febrúar 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmyndabox eru sífellt algengari sjón við hvers kyns tilefni. Afmæli, fermingarveislur, brúðkaupsveislur, skólaböll, árshátíðir og margt fleira. „Fólk er að átta sig á hvað þetta er sniðug viðbót í veisluna. Ekki skemmir fyrir að kostnaðurinn kemur skemmtilega á óvart, því þetta er alls ekki dýrt, en afraksturinn er aftur á móti ómetanlegur. Það myndast skemmtileg stemning og eftirvænting í kringum kassana sem erfitt er að toppa. Þegar mynd er tekin, er í boði fyrir þá sem eru á myndunum, að láta senda sér í sms, tölvupósti, nota QR kóða eða fá myndina útprentaða þegar leigður er prentari með myndaboxinu. Leigutakinn fær allar myndirnar og Selfie geymir myndirnar í tvö ár. Í lok viðburðar er því til fullt af skemmtilegum myndum sem gaman er að fletta í gegnum og minnast góðra stunda,“ segir Ægir, annar eigenda Selfie.is.

Bestu mögulegu myndgæði

Selfie.is býður upp á fjölbreytt úrval af myndaboxum með mismunandi útlit sem passa í margs konar veislur. „Við leggjum mikla áherslu á mikil myndgæði og notumst eingöngu við hágæða ljósmyndavélar frá Canon. Einnig notum við hágæða stúdíóljós frá virta svissneska framleiðandanum Elinchrom sem skilar sér í fullkominni lýsingu á myndunum og bestu mögulegu myndgæðum sem völ er á. Myndaboxin frá okkur skila því skýrum og flottum myndum. Við bjóðum einnig upp á myndabox þar sem iPad tekur myndirnar eins og t.d. Selfie hringurinn.“ Á meðan myndaboxin eru í leigu erum við alltaf á vaktinni og hægt að hringja í okkur. Öll myndaboxin eru til sýnis á heimasíðunni selfie.is með stjörnugjöf sem segir til um gæði myndaboxanna.

Selfie hringur.

Fáðu prentara með myndboxinu

Selfie.is hefur sankað að sér yfir áttatíu mismunandi bakgrunnum og skemmtilegum leikmunum til þess að hressa upp á myndirnar. „Flottur bakgrunnur gerir myndirnar skemmtilegri og eftirminnilegri. Safnið okkar er sístækkandi og bakgrunnar okkar henta við hvaða tilefni sem er. Við erum með brons-, silfur- og gullpakka ásamt því að sérsníða pakka fyrir viðskiptavini.“

Bronspakkinn inniheldur myndabox, uppsetningu og frágang.

Silfurpakkinn, sem er vinsælastur hjá okkur, inniheldur myndabox, bakgrunn og leikmuni.

Gullpakkinn inniheldur myndabox, bakgrunn, leikmuni, prentara og 100 myndir. Þá er hægt að fjölga myndunum í 700 með litlum viðbótarkostnaði.

Hjartaboxið með prentara og leikmunum.

Selfie myndabox í fermingarveisluna

Myndaboxin verða sífellt vinsælli í fermingarveislum sem og úskriftarveislum. „Það eru margir búnir að bóka hjá okkur myndabox í útskriftir og fermingar núna í vor. Svona box bætir töluverðu við hvaða veislu sem er, heldur uppi stemningunni og svo er afraksturinn sá að maður á fullt af skemmtilegum myndum eftir á.“

 

Gestabókin hefur aldrei verið svona flott

Stærri myndaboxin hafa það fram yfir þau minni að þau hafa möguleika á tengingu við ljósmyndaprentara sem prentar út allt að 700 myndir á staðnum. Selfie.is býður þá upp á gestabækur sem er afar sniðug viðbót í veisluna ef leigður er prentari. Gestabókin er með plastvasa sem myndirnar passa í og þarf því ekki að líma myndirnar í bókina. Þá þarf einungis að smella myndinni í og skrifa skemmtilega kveðju við myndina.

Myndabox í kynningarskyni

Myndaboxin eru stórsniðug og skemmtileg lausn fyrir fyrirtæki til að nota í kynningarskyni. „Þá er vinsælt að halda viðburði og vörukynningar á vegum fyrirtækisins og leigja myndabox. Hægt er að setja lógó fyrirtækisins á myndirnar sem koma úr boxinu, starfsmenn og gestir deila myndunum á Facebook og Instagram og fyrirtækið verður sýnilegra á samfélagsmiðlum. Einnig hafa fyrirtæki verið að nýta sér myndaboxin í starfsmannamyndatökur, en þetta er mjög hentug lausn þar sem hægt er að velja úr myndum og myndirnar koma strax,“ segir Ægir.

Í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði!

Selfie.is byrjaði árið 2018 að leigja út myndabox í veislur. „Upphaflega vorum við staðsett í Reykjavík, með þrjú myndabox og nokkra bakgrunna, en þetta hefur stækkað hratt. Í dag erum við með fimmtán myndabox, yfir áttatíu bakgrunna og erum staðsett í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Því getum við þjónustað stóran hluta af landinu. Þá bjóðum við fólki einnig upp á að sækja til okkar gráa og klassíska myndaboxið og setja sjálft upp, t.d. ef um er að ræða veislur úti á landi. Þau myndabox eru með ljósmyndavél og stúdíóljósi eins og stærri myndaboxin okkar, en eru leigð í helgarleigu, frá föstudegi til sunnudags (eða eftir samkomulagi) og því á sama verði.

Klassíska boxið með prentara.

Heimasíðan okkar er einföld í notkun og hægt er að panta allt á henni. Við bjóðum fólki upp á að greiða með greiðslukorti, Netgíró, Pei, millifærslu eða að fá innheimtukröfu í bankann. Það er um að gera að tryggja sér myndabox í veisluna í tæka tíð því á seinasta ári voru margar helgar fullbókaðar. Við höfum fengið að taka þátt í að skapa minningar með fjölda fólks og erum komnir með fasta viðskiptavini sem leigja aftur og aftur myndabox hjá okkur. Við leggjum okkur fram við að þjónusta okkar viðskiptavini sem best.“

 

Selfie.is – myndaðu gleðina með okkur

Sími: 519-3636

Tölvupóstur: selfie@selfie.is

Facebook: Selfie.is Myndabox

Instagram: Selfie.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum