

Erlendur karlmaður liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir að hafa hent sér út úr leigubíl á ferð við Ásbrú. Atvikið átti sér stað síðastliðinn mánudag. Maðurinn steig upp í leigubílinn við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og pantaði sér far að Ásbrúar-svæðinu. Þegar á áfangastað var komið virkaði ekki kort mannsins og því gat hann ekki greitt fyrir bílinn. Hann og leigubílstjórinn urðu sammála um að snúa við og athuga hvort kortið myndi virka í öðrum posa.
Þegar stutt var liðið af ferðinni til baka þá opnaði farþeginn fyrirvaralaust dyrnar og henti sér út. Samkvæmt heimildum DV var bílinn þá á um 40 kílómetra hraða á klukkustund. Farþeginn stórslasaðist við fallið og hringdi bílstjóri aðvífandi leigubíls samstundis á sjúkrabíl. Leigubílstjórinn vildi ekki tjá sig um atvikið en var auðheyrilega miður sín vegna þess.
DV hefur ekki upplýsingar um líðan hins slasaða. Samkvæmt öruggum heimildum var hann í dái fyrst um sinn en síðan hafa engar fregnir borist. Engar upplýsingar fengust frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um málið. Fulltrúi Lögreglunnar á Suðurnesjum tjáði blaðamanni að fréttatilkynning yrði send út til fjölmiðla vegna málsins. Hún hafði ekki borist þegar blaðið fór í prentun.