fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Íslenskur fíkill lætur allt flakka – Martraðarkarakterar tala um að drepa hann – Meðferð orðin hluti af djamminu

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 20. desember 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur fíkill leyfir fólki að taka þátt í svokölluðu Spyrðu mig að hverju sem er (e. Ask me anything) á samfélagsmiðlinum Reddit, en slíkt er afskaplega vinsælt á miðlinum.

„Ég er virkur eiturlyfjafíkill á þrítugsaldri og mæti mikið af fordómum í samfélaginu frá allskonar fólki. Fíkn er að mínu mati alvarlegasti geðsjúkdómur samtímans en samfélagsleg viðhorf til þolenda hans eru oft á tíðum lituð af fyrirlitningu og fordómum.“

„Fordómar byggja á vanþekkingu og vil ég fræða fólk um upplifun mína sem virkur boðefnabröltari, vonandi með þeim afleiðingum að auka skilning á sjúkdómsástandinu, hvernig líf dópistans er frá sjónarmiði hans og vonandi opna einhverja umræðu sem skilar einhverskonar jákvæðni til samfélagsins.“

Í færslu fíkilsins koma einnig fram mikið ef upplýsingum um hann er varða hann persónulega og neysluna.

– Ég hef lokið 6 vikna meðferð hjá SÁÁ og verið virkur innan AA samtakanna, unnið öll 12 sporin og á hálfs árs tímabil þar sem ég var alveg allsgáður.

– Ég er af höfuðborgarsvæðinu

– Ég lauk ekki framhaldsskóla

– Ég er í fullu starfi og hef aldrei verið á neinskonar uppihaldi hjá ríkinu.

– Ég hef selt eiturlyf til að fjármagna eigin neyslu.

– Ég kem af venjulegu miðstéttarheimili og bjó aldrei við neinn skort, hvorugt foreldra minna er í rugli hvað varðar vímuefni en bæði ólust upp á heimili með miklum alkóhólisma og lyfjafíkn.

– Nota frá 1-5 grömm af amfetamíni á dag og drekk , var áður kókaínfíkill en hætti því eftir að hafa tamið mér það að reykja það. Drekk á hverjum degi en þó ekki til annars en einfaldlega sem buffer á spítt.

Sjálfshatur ástæðan fyrir Amfetamínnotkunin

Einstaklingurinn segir við fólk að það megi spyrja hann að hverju sem er. Hann óskar þó eftir að fá sem minnst niðurrif og kvittar undir færsluna sem „Dópisti“. Fyrsta spurningin sem fíkillinn svarar varðar fíkn hans á amfetamíni, það er að segja hví hann sækist í það. Ástæðuna segir hann tengjast sjálfshatri.

„Ég er að deala við fullt af einhverjum sjálfshaturscomplexum sem eru mér það rótgrónir og gamlir að ég hreinlega man ekki hvaðan þeir koma, en amfetamín er quick fix lausn á þeim, öllu veseninu sem kom með því á sínum tíma líka að drekka illa og vinna daginn etir var svo sleppt með amfetamíni og í skammdeginu er þetta þunglyndislyf sem tekur af mér óöryggi og mér finnst gera mig frjóan.“

Martraðarkarakterar tala um að drepa hann

Mikið kemur fram í svörum fíkilsins sem segist hafa þekkt til um það bil tíu manns sem hafa látist af völdum vímuefna. Hann segist eyða frá 100 þúsund upp í alveg 750 þúsund krónum á mánuði í neysluna, en fram kemur að eyðslan fari eftir aðstæðum og árstíðum. Fíkillinn segist lengi hafa vakið í sjö til átta daga og í einu svarinu lýsir einnig upplifun sinni af geðrofi af völdum fíkniefna (e. stimulant psychosis).

„Ég hef verið í atriði þar sem ég heyri bara bergmál radda sem eru að tala eitthvað um mig en ég heyri ekki hvað þær segja, bara að þær séu að tala um mig.“

„Hef líka lent í því að fá alveg sjónrænar ofsjónir þar sem myndir á veggjum glotta til mín og fólk sem er ekki þar sem líta út eins og martraðarkaraktera tala um að drepa mig og á meðan er ég með eitthvert stef eða laörg gjsamlega fast á heilanum.“

Byrjaði aftur því honum leiddist

Fíkillinn kom því á framfæri að hann hefði hætt í neyslu, en byrjaði aftur. Megin ástæðan fyrir því virðist vera vegna þess að hann afi ekki fundið sig á AA-fundunum.

„Mér dauðleiddist þessir fundir. Ég einangraðist mikið í félagsramma þessa batasamtaka og mér þóttu meirihluti þeirra sem á fundunum voru vera hundleiðinlegir og þurrir einstaklingar sem ég nennti ekki að hlusta á. Mér þótti orðræða einstaklinga í pontu vera dogmatísk eins og þetta væru bara 11 gaurar í röð að segja sama hlutinn á mis heimskulegan máta eftir tökum hvers og eins á tungumálinu, ég gat ekki tengst neinum vinaböndum í líkingu við þetta level af því að skilja einhvern annan sem opnar sig um hvað hann heldur um lífið í einhverju eftirpartýi , hef aldrei trúað á guð og gat ekki fyrir mitt litla líf trúað á guð þrátt fyrir að hafa reynt það en fyrst og fremst var ég bara óöruggur með sjálfan mig og svartsýnn á það að lífið næði einhverntímann sama glans og það hafði virkað þegar ég byrjaði að misnota þessi efni.“

Meðferð hluti af djamminu

Samkvæmt svörum fíkilsins þá hefur hann lítið álit á meðferðarkerfinu á Íslandi, þó hann telji aðganginn greiðann fyrir alla. Honum finnist að meðferðir eigi að byggja meira á vísindum og snúast meira um einstaklinginn. Hann segist þekkja fólk sem hafi farið í meðferð til að sofa smá eftir djammið.

„Ég þekki marga sem hafa fyrir rest farið að upplifa meðferð sem bara part af djamminu og einhvern stað þar sem þeir fá að flýja eiturlyfjaskuldir og sofa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda