fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Þrautaganga vinsæls jólalags: „Ég veit að þetta er væmið, en mér er sama“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Föstudaginn 20. desember 2019 20:30

Gamla myndbandið Mariah er mikið jólabarn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir hafa eflaust heyrt stórsöngkonuna Mariuh Carey þenja raddböndin í laginu All I Want for Christmas Is You í kringum jólahátíðina. Lagið er spilað í verslunum, á öllum útvarpsstöðvum og í heimahúsum. Útgáfur af því heyrast í vinsælum jólamyndum og auglýsingum. Þannig hefur það verið síðan það var gefið út árið 1994. Því verða eflaust einhverjir undrandi þegar þeir heyra að lagið komst í fyrsta sinn í efsta sæti vinsældalista í Bandaríkjunum í vikunni.

Nær hún Bítlunum?

Lagið var gefið út á EP-plötu fyrir 25 árum. Þá kváðu reglur um vinsældalista á um að lagið mætti ekki keppa við aðrar smáskífur. Árið 2000 var lagið endurskilgreint sem stakt lag og þá mátti Mariah demba sér í vinsældabaráttuna. Nítján árum síðar hefur sú þrautaganga skilað sér í toppsætinu.

Þetta er nítjánda lagið sem Mariah kemur á topp vinsældalista í Bandaríkjunum og andar því ofan í hálsmálið á Bítlunum. Þeirra met er tuttugu lög. Þetta er einnig fyrsta jólalagið til að ná toppsætinu síðan íkornaprakkararnir vermdu það árið 1958 með lagið The Chipmunk Song (Christmas Don’t Be Late).

„Þetta er eitthvað sem dyggir aðdáendur mínir hugsa um og eitthvað sem fólk í kringum mig talar um bókstaflega allt árið. En ég þarf ekki staðfestingu á að þetta lag er til. Ég hnýtti einu sinni í allt þegar ég hlustaði á það en núna get ég loksins notið þess. Ég elska hátíðarnar. Ég veit að þetta er væmið, en mér er sama,“ segir Mariah í viðtali við New York Times.

Jól í botni Mariah tekur lagið á tónleikum. Mynd: Getty Images

Streymt fyrir allan peninginn

Þó að lagið hafi ekki vermt toppsætið á vinsældalistum áður hefur því gengið afar vel á streymisveitum. Greiningarfyrirtækið Nielsen segir að streymisvöxtur lagsins milli ára sé óviðjafnanlegur. Jólin 2014 var því streymt 12,6 milljónum sinnum. Tveimur árum síðar var sú tala komin upp í 61 milljón og yfir jólin í fyrra var laginu streymt 185 milljón sinnum. Þá hefur spilunartími í útvarpi vestanhafs næstum því tvöfaldast yfir sama tímabil. Mariah hefur notið góðs af þessari velgengni. Hún skrifaði barnabók út frá laginu og teiknimynd svo fátt eitt sé nefnt. Í tilefni velgengni lagsins í Bandaríkjunum í ár gaf hún út glænýtt tónlistarmyndband fyrir þetta sögufræga lag.

Samið á korteri

Lagið var samið með hvelli einn dag í ágúst árið 1994. Það tók Mariuh og Walter Afanasieff korter að semja það og var það smellurinn á jólaplötu söngkonunnar, Merry Christmas. Lagið var samið heima hjá Mariuh í New York og fyllti hún íbúðina af alls kyns jólaskrauti til að koma sér í lagasmíðagírinn, sem virkaði svona líka vel. Walter var ekki sannfærður í fyrstu. Hann skildi ekkert hvert Mariah var að fara með lagið en ákvað að treysta henni, sem betur fer.

Þótt gagnrýnendur hafi almennt verið ánægðir með lagið hefur það heldur aldrei náð toppsæti vinsældalista í Bretlandi. Það var í þrjár vikur í öðru sæti árið 1994 en náði ekki að skáka ballöðunni Stay Another Day með East 17, strákasveit sem varla nokkur man eftir lengur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 3 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna