fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
433Sport

Gaupi steinhissa: Erum á villigötum – „Blaðamenn eiga ekki að láta bjóða sér svona vitleysu“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska landsliðið er komið til Tyrklands þar sem liðið undirbýr sig fyrir landsleikina gegn Tyrklandi og Moldóvu. Ísland þarf að vinna báða leikina til að eiga veika von á sæti á EM. Liðið þarf að treysta á að Andorra taki stig gegn Tyrkjum til að liðið fljúgi beint inn á mótið. Annars er það umspil í mars, sem getur komið liðinu á sitt þriðja stórmót. Fyrsta alvöru æfing liðsins fór fram í Antalya í gær en fréttamaður okkar er á leið til Tyrklands og kemur með allt það nýjasta fyrir okkur.

Fótbolti.net kom til Tyrklands um helgina og fékk viðtal við Kolbein Sigþórsson, markahæsta leikmann í sögu Íslands. Fyrir viðtalið fékk Elvar Geir Magnússon, ritstjóri vefsins skipun frá fjölmiðlafulltrúa KSÍ. ,,Fyrir viðtalið fengu fjölmiðlar þó þær upplýsingar frá starfsmönnum KSÍ að ekki mætti spyrja út í þann fréttaflutning að Kolbeinn hefði verið handtekinn í Svíþjóð á dögunum eftir læti á skemmtistað,“ skrifar Elvar á Fótbolta.net.

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, fréttamaður hjá Sýn hefur mikla reynslu og segir svona mál ekki gott. ,,Þegar blaðamenn fá fyrirmæli um hvað má spyrja og hvað ekki erum við á villigötum. Hvernig má þetta vera. Við lifum á tímum auðmýktar. Það vita allir,“ skrifar Gaupi á Twitter.

Gaupi segir að blaðamenn eigi ekki að láta bjóða sér svona ,,Þetta er algjör þvæla og blaðamenn eiga ekki að láta bjóða sér svona vitleysu. Ísland – Tyrkland.Góðar stundir.Eina.“

Fréttablaðið sagði frá því fyrir tæpum tveimur vikum að Kolbeinn hafi verið handtekinn á næturlífinu í Stokkhólmi, þar sem hann spilar með AIK. Málið vakti mikla athygli en enginn hefur viljað tjá sig um það. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DV hefur undir höndum, var Kolbeinn rangur maður á röngum stað, á röngum tíma. Hann var ekki sökudólgur í þeim látum sem áttu sér stað þessa örlagaríku nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrrum stjarna Chelsea með þung orð um Amorim

Fyrrum stjarna Chelsea með þung orð um Amorim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Farnir að nota skó sem eiga að gera kraftaverk fyrir heilann á þér

Farnir að nota skó sem eiga að gera kraftaverk fyrir heilann á þér
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

„Hann verður gleymdur, sköllóttur og feitur fljótlega“

„Hann verður gleymdur, sköllóttur og feitur fljótlega“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Naumt tap hjá Blikum gegn Dönunum

Naumt tap hjá Blikum gegn Dönunum