Í Costco voru tvær stórar styttur til sölu. Annars vegar fíll sem kostar um hálfa milljón og svo glæsileg og tignarleg stytta af gíraffa.
Í síðustu viku hvarf gíraffinn úr versluninni og ræddi mbl við framkvæmdastjórann
„Hann er ekki lengur frammi í versluninni en er enn þá á bak við hjá okkur. Hann er bara að fá smá hvíld frá almenningi,“ sagði framkvæmdastjórinn og hló.
Gíraffinn er nú kominn aftur í verslunina og er búið að hengja á hann miða þar sem á stendur:
„Seldur.“