fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025

Spáð í tarot fyrir Elínu Hirst: Framtíðin björt eftir erfiðan skilnað

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 6. september 2019 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega birtust þær fréttir að Elín Hirst, fyrrverandi alþingiskona og fréttastjóri, væri skilin við eiginmann sinn til 35 ára, Friðrik Friðriksson, fjármálastjóra Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. DV ákvað að leggja tarotspil fyrir Elínu á þessum tímamótum, en lesendum er bent á að þeir geta gert slíkt hið sama á vefnum.

Mikil veisluhöld

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Elínu er 9 bikarar, en spilið táknar sannleika sem Elín hefur nýverið þurft að horfast í augu við. Þegar sannleikurinn er talaður ljómar hann og glitrar fallega og nú hefur Elín gefið umhverfi sínu skýlaus skilaboð og er frjáls frá vantrausti og takmörkunum. Það er Elínu eðlislægt að sýna kærleika í verki og finnst henni best á þessum tímamótum að eyða tíma með þeim sem hún elskar. Umhyggja, heiðarleiki og jákvætt viðhorf til lífsins lýsir Elínu best og leggur hún mikið upp úr því að búa til notalegt umhverfi í kringum sig. Á næsta leiti eru veisluhöld með skyldfólki og veita mannleg samskipti henni mikla gleði á þessum erfiða tíma.

Þráir jafnvægi

Næsta spil er 5 bikarar en það táknar einhvers konar missi eða vonbrigði sem ýta undir leiða hjá Elínu. Ef hún leyfir þessari líðan að ná yfirtökum á annars jákvæðri og bjartri orku sinni er hætt við að neikvæðar tilfinningar verði henni þungbærar og magnist í huga hennar. Það ýtir undir ójafnvægi en það á einkar illa við Elínu þar sem hún þráir jafnvægi í sínu lífi. Elín ætti að leggja sig fram við að opna hjarta sitt fyrir því sem eflir hana og kasta frá sér þungu byrðunum sem hvíla á herðum hennar. Hún skal einnig hafa hugfast að í hverju vandamáli felast dulbúin tækifæri.

Rís upp úr vonleysi

Lokaspilið er Tunglið. Tilfinningar Elínar eru sem ringulreið og hún gæti fundið fyrir einmanaleika á næstunni, jafnvel ístöðuleysi. Elín gæti haft það á tilfinningunni að hún ráði ekki við það erfiði sem ríkir núna en það gæti ekki verið fjær sannleikanum. Hún má ekki leggjast niður í vonleysi heldur þarf að rísa upp og takast á við framhaldið. Ójafnvægið og svartsýni geta villt henni sýn en Elín þarf að horfa betur í kringum sig til að sjá allt það sem lífið hefur upp á að bjóða. Framtíðin er björt og enginn tími fyrir leiðindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mætti meiddur og gefst upp á að reyna að ná næsta leik

Mætti meiddur og gefst upp á að reyna að ná næsta leik
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Söngkonan rýfur þögnina um þyngdartapið og gagnrýnina

Söngkonan rýfur þögnina um þyngdartapið og gagnrýnina
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

„Treysti því að sama fólki sé misboðið þegar foreldrið á myndinni útsetur önnur börn en sín eigin fyrir „umræðunni”“

„Treysti því að sama fólki sé misboðið þegar foreldrið á myndinni útsetur önnur börn en sín eigin fyrir „umræðunni”“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Englendingar styðja UEFA sem skoðar að gera stórtækar breytingar

Englendingar styðja UEFA sem skoðar að gera stórtækar breytingar
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Jón Viðar segir Nadine þurfa að beina reiðinni að eiginmanninum

Jón Viðar segir Nadine þurfa að beina reiðinni að eiginmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fékk skilaboð um að hann geti gleymt því að fara frá United í janúar

Fékk skilaboð um að hann geti gleymt því að fara frá United í janúar
Eyjan
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þarf að draga sig úr enska landsliðshópnum

Þarf að draga sig úr enska landsliðshópnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.