Blandar sér í umræðuna um vopnavæðingu lögreglunnar
„Við þurfum líka að viðurkenna þá ógn sem fylgjendur öfga-íslams bera með sér. Að forðast þá umræðu er hrein og klár og afneitun,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í grein í Morgunblaðinu í dag en þar blandar hún sér í umræðuna um vopnavæðingu lögreglunnar. Inga skrifar:
„Sérsveit lögreglunnar undir alvæpni sýnir sig á almannafæri og það án þess að hættustig sé aukið opinberlega. Hvað vita þeir sem við vitum ekki? Hvers vegna vill enginn taka umræðuna um ástandið í Evrópu og þá staðreynd að Ísland tilheyrir henni, þótt enginn hafi verið sprengdur eða myrtur hér í hryðjuverkaárás enn sem komið er?“
Inga Sæland bendir á að þó að sett hafi verið á laggirnar þjóðaröryggisráð sem fundar í kjarnorkubyrgi á Keflavíkurflugvelli þegi ráðamenn þunnu hljóði um þá yfirvofandi ógn og hættu sem hún telur að kunni að steðja að þjóðinni. Hún minnir á að Ísland sé hluti af Evrópu þar sem margar hryðjuverkaárásir hafi átt sér stað undanfarið og segir mikilvægt að taka umræðuna um hryðjuverkaógnina og ekki láta þagga hana niður:
„Það er kominn tími til að taka umræðuna og löngu kominn tími til að taka á árásum þeirra samlanda okkar sem vilja og munu kalla okkur öllum illum nöfnum. Þeirra sömu og vilja breiða út faðminn og bjarga öllum heiminum,“ segir Inga og telur mikilvægt að fela sig ekki bak við það sem hún kallar „rétttrúnaðarkenningar“ og treysta því að hryðjuverkaógnin komi ekki til Íslands: „Allar vestrænar þjóðir sem trúa á frelsi, lýðræði og jafnrétti kynjanna eru möguleg skotmörk hryðjuverka eins og dæmin sanna.“