fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Lögreglan greinir frá óvenjulegum slagsmálum á Suðurnesjum: „Talsvert æstur eftir átökin og heimtar re-match“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 18. júlí 2019 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá slagsmálum sem áttu sér stað í bakgarði við heimahús í Keflavík.

„Annar aðilinn lenti að sjálfsögðu undir eins og gengur og gerist. En það sem er einkennilegt við Þessi slagsmál er að sigurvegarinn bar þann sem varð undir í kjaftinum heim til sín, sigri hrósandi,“ segir í færslu lögreglunnar á facebook.

Lögreglan greinir síðan frá því í færslu sinni að slagsmálin hafi nefnilega verið á milli kattar og hamsturs.

„Eigandi kattarins náði hamstrinum frá kisa og kom með hann á lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Við leitum því nú af eiganda slagsmálahamstursins sem við höfum gefið nafnið Hamstur Macgregor í kerfum okkar.“

Lögreglan segist semsagt hafa skýrt hamsturinn Hamstur Macgregor, sem er líklega í höfuðið á bardagakappanum fræga Conor McGregor.

Lögreglumenn á vakt halda því síðan fram að hamsturinn hafi heimtað endurat við köttinn. Blaðamaður spyr sig hvernig lögreglumennirnir hafi skilið hamsturinn.

„Að sögn lögreglumanna á vakt þá er hamsturinn talsvert æstur eftir átökin og heimtar re-match við kattarófétið (eins og hann orðar það),“

Að lokum óskar að lokum eftir því að einhver gæti tekið það á sig að sjá um þessi mál.

„Það verður vonandi ekki langt í að við á Suðurnesjum náum út eins og einu stöðugildi lögreglumanns sem mun alfarið sjá um vesenið á þessum blessuðu dýrum hér á svæðinu,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short