fbpx
Laugardagur 13.september 2025
Matur

Er kolsýrt vatn slæmt fyrir tennurnar?

Fókus
Laugardaginn 29. júní 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á heitum og góðum sumardegi er ótrúlega ljúft að drekka eitthvað ískalt og sumum finnst fátt betra en ólgandi vatn, vatn með kolsýru. En er kolsýrt vatn, eins og til dæmis Soda Stream, slæmt fyrir tennurnar?

Þessari spurningu var nýlega velt upp á vefmiðlinum kk.no. Þar kemur fram að í kolsýrunni er sýra og að hún geti valdið skemmdum á tönnum. Haft er eftir Malin Hansen tannlækni að þetta sé auðvitað ekki gott fyrir tennurnar en heldur ekki stórhættulegt. Þetta sé ekki nægilega mikið magn til að það geti unnið á glerungnum en fólk sé þó misjafnt og bregðist misjafnlega við mat og drykk og það eigi einnig við um tennur okkar.

Hún sagði að það væri ekki fyrr en farið væri að setja bragðefni út í kolsýrt vatn sem ástæða væri til að hafa áhyggjur af tönnunum. Þá sé fólk farið að drekka gosdrykki en PH gildi þeirra er lægra en í vatni og það valdi því að glerungurinn á tönnunum fer að eyðast. Þetta séu sömu áhrif og af sykri.

Það er því best að sleppa drykkjum sem innihalda sykur og bragðefni. Best er að drekka hreint vatn og næst best er kolsýrt vatn án bragðefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
07.05.2025

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til
Matur
29.04.2025

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“
Matur
21.03.2025

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“
Matur
03.03.2025

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“