fbpx
Sunnudagur 14.september 2025
Fókus

Berar brjóst og rass og endurgerir atriðið sem hneykslaði alla – Myndir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Fimmtudaginn 9. maí 2019 17:30

Hver man ekki eftir þessu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sharon Stone, sem fagnaði sextugsafmæli sínu í fyrra, prýðir síður portúgalska Vogue og endurgerir sögufrægt atriði úr kvikmyndinni Basic Instinct sem kom út árið 1992.

Atriðið sem um ræðir er þegar að persónan sem Sharon túlkaði, hin dularfulla Catherine Tramell, er yfirheyrð í tengslum við morðið á rokkstjörnu, glennir út fótleggi sína og sýnir klof sitt. Atriðið er eitt það goðsagnakenndasta í kvikmyndasögunni og hneykslaði marga á sínum tíma. Þá hefur margoft verið gert grín að því.

Endurgerðin.

Myndirnar í Vogue eru ansi djarfar, en á þeim berar Sharon til að mynda brjóst sín og afturenda. Þá minnir hvítur kjóll á einni myndinni óneitanlega á klæðnað Catherine Tramell í yfirheyrsluherberginu.

Hvíti kjóllinn í Vogue.

Þessar fallegu myndir staðfesta að Sharon er stolt af hlutverki sínu í Basic Instinct, þó hún hafi ekki verið fyrsta val leikstjórans Paul Verhoeven, en áður hafði hann boðið leikkonunum Michelle Pfeiffer og Demi Moore hlutverkið.

Bossi.

Basic Instinct kom Sharon á kortið í leiklistarheiminum, en hún byrjaði hins vegar í bíóbransanum árið 1980 í Woody Allen-myndinni Stardust Memories. Þá var hún 22ja ára. Þá var hún tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í Casino sem kom út árið 1995 og hefur leikið í myndum á borð við Sphere, Broken Flowers og Alpha Dog.

Falleg mynd.
Sharon er óhrædd.

Nýjasta verkefni Sharon er sjónvarpsserían Mosaic en næstu verkefni hennar eru þáttaraðirnar The New Pope og Ratched sem og kvikmyndirnar What About Love og verkefni með Robert De Niro og Meryl Streep sem hefur enn ekki hlotið nafn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Jóhannes Valgeir látinn

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ætlaði ekki að kynnast framtíðarmakanum á stefnumótaforriti en þökk sé vinkonu gaf hún því tækifæri

Ætlaði ekki að kynnast framtíðarmakanum á stefnumótaforriti en þökk sé vinkonu gaf hún því tækifæri
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“

Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hulk Hogan átti eiginkonu og tvö börn en aðeins eitt þeirra fær að erfa hann

Hulk Hogan átti eiginkonu og tvö börn en aðeins eitt þeirra fær að erfa hann
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur segir aðeins útvalda geta rist nafn sitt í frost

Jóhannes Haukur segir aðeins útvalda geta rist nafn sitt í frost
Fókus
Fyrir 4 dögum

RÚV staðfestir þátttöku í Eurovision 2026 með fyrirvara

RÚV staðfestir þátttöku í Eurovision 2026 með fyrirvara
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varst þú að kaupa gallaða fasteign? – Þetta getur þú gert

Varst þú að kaupa gallaða fasteign? – Þetta getur þú gert