fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Ingibjörg er látin

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 6. maí 2019 20:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin ástsæla útvarpskona, lagahöfundur og söngkona, Ingibjörg Þorbergs, er látin, 92 ára gömul. Ingibjörg varð fyrst íslenskra kvenna til að syngja eigið lag inn á hljómplötu, eins og kemur fram í frétt á vef RÚV, og hún samdi mörg vinsæl lög og söng fjölda laga inn á hljómplötur.

Ingibjörg starfaði á Ríkisútvarpinu frá árinu 1952 og stýrði meðal annars hinum vinsæla þætti, Óskalög sjúklinga.

Ingibjörg útskrifaðist sem klarinettleikari úr Tónlistarskólanum í Reykjavík 1952, fyrst allra klarinettleikara og var fyrst kvenna til að ljúka einleikaraprófi á blásturhljóðfæri.

Meðal laga eftir Ingibjörgu eru hinar þekktu Aravísur.

Ingibjörg var glæsileg kona, í senn fáguð og vinsamleg, bauð hvarvetna af sér góðan þokka.

Youtube skjáskot

Á vef RÚV segir:

„Ingibjörg var kjörin heiðursfélagi Félags tónskálda og textahöfunda árið 1996 og hlaut heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2003 og hlaut heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008.

Ingibjörg giftist Guðmundi Jónssyni, píanóleikara, árið 1976. Hann átti fjögur börn frá fyrra hjónabandi. Guðmundur lést 2010. Ingibjörg lést á Hrafnistu í Reykjanesbæ, 6. maí 2019.“

Meðal þeirra sem minnast Ingibjargar er hinn vinsæli tónlistarmaður, Jón Ólafsson, sem ritar á Facebook-síðu sína:

„Ingibjörg Þorbergs er látin. Merkiskona er fallin frá en hún var mikill frumkvöðull á sviði laga- og textagerðar og fyrsta íslenska konan sem söng eigið lag inn á hljómplötu. Ég náði að kynnast þessari góðu konu og meira að segja varð ég þess heiðurs aðnjótandi að spila undir hjá henni í sjónvarpinu fyrir margt löngu. Hún var virkur meðlimur í Félagi tónskálda og textahöfunda á meðan hún hafði heilsu til og var dugleg að mæta á félagsfundi. Blessuð sé minning hennar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Í gær

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað