fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Fellihýsi losnaði aftan úr bifreið og rann á aðra

Ritstjórn DV
Mánudaginn 6. maí 2019 10:09

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umferðaróhapp varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær er fellihýsi losnaði aftan úr bifreið og hafnaði á annarri sem var nærri. Engin slys urðu á fólki, að því er segir í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá varð umferðarslys á föstudag þegar bifreið var ekið aftan á aðra á Reykjanesbraut. Fyrrnefnda bifreiðin hafnaði utan vegar á vegriði. Ökumaður hennar var grunaður um ölvunarakstur.

Ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var aftan á slasaðist og þurfti að sauma nokkur spor í andlit hans til að loka skurði sem hann hlaut við aftanákeyrsluna.

Fleiri umferðaróhöpp hafa orðið á undanförnum dögum, en þau hafa verið minni háttar og engin teljandi slys á fólki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Í gær

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað