fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Sjö af hverjum tíu íbúðum eru á Airbnb í sumum götum Reykjavíkur

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. maí 2019 14:18

Miðborgin er ekki ofarlega á óskalista margra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dæmi eru um að allt að sjötíu prósent íbúða í sumum götum á höfuðborgarsvæðinu séu skráðar á leigusíðuna Airbnb. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á áhrifum Airbnb á húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu.

Reykjavíkurborg greinir frá niðurstöðunum í tilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag. Þar segir að helstu niðurstöður séu þær að fjöldi skráðra eigna hjá Airbnb hefur margfaldast síðastliðin ár.

„Þéttleiki er mestur í 101 Reykjavík og næsta nágrenni en þar eru 60 prósent skráðra eigna, og í sumum götum er allt að 70 prósent eigna skráðar á Airbnb. Í apríl 2019  voru 58% skráðra eigna Airbnb í Reykjavík starfræktar án lögbundins leyfis. Þá virðist Airbnb og stuttir leigusamningar frekar hafa ýtt undir félagslegan ójöfnuð á höfuðborgarsvæðinu, eins og lesa má í niðurstöðum.“

Í tilkynningunni segir að verkefnið hafi haft tvö markmið; annars vegar að gera tölfræðilega úttekt á þróun framboðs og landfræðilegri dreifingu Airbnb á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2016-2018 og kanna hversu stór hlutfall hafði tilskilið leyfi.  Hins vegar var kannað á hvaða forsendum leigusalar starfrækja Airbnb á höfuðborgarsvæðinu, hvaða áhrif starfsemin hefur haft á húsnæðismarkaðinn og hvaða áhrif það hefur haft í för með sér fyrir heimamenn.

„Niðurstöður voru í stórum dráttum þær að fjöldi skráðra eigna hjá Airbnb hefur margfaldast á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðnum árum t.d. var tvöföldun á tímabilinu janúar 2016 – janúar 2018  þegar skráðum eignum fjölgaði úr 2032 í 4154.  Um þrjár af hverjum fjórum skráðum eignum í Reykjavík eru heilar eignir (íbúðir/hús) sem er hærra hlutfall en í flestum öðrum fjölsóttum borgum Evrópu.,“ segir enn fremur.

Þá kemur fram að 80% skráðra eigna á höfuðborgarsvæðinu séu staðsettar í Reykjavík, 37% í 101 Reykjavík, 17% í 105 Reykjavík og 7% í 107 Reykjavík.  Miðborgin og næsta nágrenni hýsir því yfir 60% skráðra eigna.

„Þær götur sem hafa flestar Airbnb eignir á skrá eru Laugavegur, Hverfisgata, Grettisgata, Berþórugata, Óðinsgata og Bjarnarstígur, en allt að 70% eigna í þessum götum eru skráðar hjá Airbnb. Í apríl 2019 voru 2.567 eignir í Reykjavík (einni og sér) skráðar á Airbnb og þar af voru 58% starfræktar án lögbundins leyfis.“

Þá kom fram í rannsókninni að leigusalar er ekki einsleitur hópur með einsleit markmið eða viðskiptaaðferðir og áhrifin eftir því ólík.

„Á meðan sum viðskiptamódel hafa fært eignarhald frá heimilum til fjárfesta og viðskipta, hafa önnur hjálpað íbúum að halda í heimili sín og/eða eiga fyrir lífsnauðsynjum. Ein af megin niðurstöðum rannsóknarinnar er sú að Airbnb og stuttir leigusamningar virðast þó frekar ýta undir félagslegan ójöfnuð. Starfsemin getur skapað fjárhagsleg tækifæri fyrir þá sem þegar eiga eignir og þannig treyst enn betur stöðu þeirra á húsnæðismarkaði. Hins vegar eru afleiðingarnar minna framboð og hærra verð sem gerir þeim sem eru á höttunum eftir að eignast heimili til kaups eða leigu erfiðara fyrir.“

Það var dr. Anne-Cécile Mermet, borgarlandfræðingur og lektor við Sorbonne háskóla í París, sem framkvæmdi rannsóknina fyrir hönd Höfuðborgarstofu með styrk frá Ferðamálastofu og Íbúðalánasjóði.  Hún hefur einnig rannsakað félagsleg- og umhverfisleg áhrif viðskiptatengdra markmiða í París.

Kynningu á niðurstöðunum má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu
Fréttir
Í gær

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna
Fréttir
Í gær

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”
Fréttir
Í gær

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð
Fréttir
Í gær

Prís alltaf verið með lægsta verðið

Prís alltaf verið með lægsta verðið