fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Kærasta Gísla er barnsmóðir Gunnars – „Ég skírði son minn í höfuðið á honum“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 2. maí 2019 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærasta Gísla Þórs Þórarinssonar,  sem lét lífið í bænum Mehamn á Noregi síðastliðinn laugardag, er barnsmóðir Gunnar Jóhanns Gunnarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Gísla. Vísir greinir frá þessu.

Gísli og Gunnar eru, líkt og áður hefur komið fram, sammæðra bræður. Gunnar segist miður sín yfir hvernig fór en þetta hafi verið hræðilegt slys. Hann hafi aldrei viljað skaða bróður sinn. Í játningunni sem Gunnar birti á Facebook síðu sinni skömmu eftir verknaðinn lýsir hann því yfir að hann hafi verið með brotið hjarta.

Fyrirgefið mér, en ég get ekki lifað með það vitandi að guðfaðir sonar míns, minn besti maður í giftingunni minni, og ég skýrði son minn í höfuð hans. […] Hjartað mitt var brotið það mikið að ég framdi svívirðilegan glæp.“

Gunnar og Elena giftu sig 2013

Gunnar Jóhann og Elena Undeland giftu sig árið 2013 og eiga börn saman. Þau slitu samvistum fyrir tveimur árum. Elena varð síðar kærasta Gísla Þórs. Hún skrifaði í færslu á Facebook að Gísli Þór hafi verið: „blíður og góður, heims­ins besti kær­asti og stjúp­faðir.“

Gunnar Jóhann var yfirheyrður í sex klukkutíma í gær og greindi þá frá því að það hafi aldrei verið ásetningur hans að skaða bróður sinn. Þetta kemur fram í frétt Vísis. Verjandinn sagði að Gunnar muni vel eftir atburðarrásinni og sé miður sín  yfir hvernig fór.

Hann man mjög vel eftir því sem gerðist, daginn áður, um kvöldið, nóttina og morguninn eftir. Allar þessar klukkustundir skipta máli, hann man þetta skýrt og man öll grundvallaratriðin. Hann hefur lýst því sem gerðist í tímaröð fyrir lögreglu og hvernig hann man þennan hræðilega atburð.“

Verjandinn, Vidar Zahl Arntzen, segir að Gunnar hafi ekki farið til Gísla Þórs til að vinna honum mein.

En það sló í brýnu á milli þeirra í íbúðinni og bróðir Gunnars særðist í þeim átökum. Gunnar reyndi svo að ná í hjálp en við vitum öll hvernig þesus lauk.“ Gunnar lýsir sig saklausan af ásökun um morð. Hann segir að þetta hafi verið hræðilegt, sorglegt slys.“

 

 

 

 

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag