fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Pressan

Hvort kom á undan? Hænan eða eggið? Svarið sem beðið hefur verið eftir

Pressan
Laugardaginn 28. júní 2025 18:30

Mynd:Allison Burrel/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spurningunni um hvort það hafi verið hænan eða eggið sem kom fyrst hefur oft verið varpað fram. Ekki eru allir sammála um svarið við henni en ef kafað er ofan í málið kemur í ljós að vísindin hafa vitað svarið áratugum saman.

Þetta kemur fram í umfjöllun Danska ríkisútvarpsins um málið. Þar er haft eftir Michael Ørsted, doktor við Álaborgarháskóla, að ef litið sé til þróunarsögunnar sé enginn vafi á að eggið hafi komið fyrst. Egg hafi verið til löngu áður en eitthvað sem minnir á fugla, þar á meðal hænur, hafi komið fram á sjónarsviðið.

Hann sagði að vísindamenn hafi verið fullvissir um þetta síðan á tíunda áratugnum en í raun hafi þetta verið vitað í 100 ár en það hafi ekki verið fyrr en á tíunda áratugnum sem steingervingar hafi fundist sem sönnuðu þetta endanlega.

Hænuegg, eins og við þekkjum þau í dag, eru þróuð útgáfa af frumgerðum eggja, til dæmis eins og þeim sem koma frá fiskum. Þróunin yfir í hænuegg byrjaði sem sagt á einhverju sem líkist fiskieggjum nútímans. Fiskar og pöddur verpa eggjum en þau eru í himnu þar sem þeim er verpt í vatn. Frá svona eggjum þróuðust egg sem líkjast eggjum skriðdýra nútímans, á einföldu máli er hægt að segja að skurnin hafi orðið þykkari en í eggjum fiska. Þetta á til dæmis við um krókódíla, egg þeirra þurfa að vera í röku umhverfi en þurfa ekki að vera í vatni því skurnin er þykkari. Skurnin er þó mjúk miðað við hænuegg.

Vísindamenn telja að egg af þessu tagi hafi síðan þróast yfir í egg eins og við þekkjum í dag hjá fuglum. Þessi þróun átti sér stað hjá risaeðlum en egg þeirra voru með hörðum skurni og komu fram á sjónarsviðið fyrir um 350 milljónum ára. Egg, eins og við þekkjum þau, voru því komin fram á sjónarsviðið þegar risaeðlur gengu um hér á jörðinni. Fuglar þróuðust út frá risaeðlum og því kom eggið fyrst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Í gær

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Karoline Leavitt fékk að heyra það eftir galna fullyrðingu um Trump

Karoline Leavitt fékk að heyra það eftir galna fullyrðingu um Trump
Pressan
Fyrir 4 dögum

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt

Frummati leyniþjónustunnar lekið og segir að árás Bandaríkjanna hafi ekki tekist ætlunarverk sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“