fbpx
Miðvikudagur 04.febrúar 2026
433

Theodór Elmar: Það er öllu tjaldað til hér í Kína

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 21. mars 2017 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er virkilega krípí mál,“ segir Silja Unnarsdóttir, eigandi hryssnanna tveggja sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri misnotkun á milli jóla og nýárs á síðasta ári. Sleipiefni, olíur og plasthanskar fundust í einni stíunni. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á málinu hefur nú verið hætt nema nýjar vísbendingar berist.

RÚV greindi frá því á mánudag að engin lífsýni og engin nothæf fingraför hefðu fundist í hesthúsinu. Lögreglan sé því enn á byrjunarreit í rannsókninni. Silja tilkynnti málið til Matvælastofnunar í lok árs 2016 sem kærði málið og fór fram á rannsókn lögreglu

Þegar blaðamaður DV náði tali af Silju, sem er dýralæknir, í gær, mánudag, kvaðst hún sjálf ekki hafa fengið að heyra að rannsókn málsins væri lokið. „Ég átti ekkert sérstaklega von á því að eitthvað fyndist. Þetta er ekki beint glæpur sem hægt er að upplýsa auðveldlega. Það er ekki auðvelt að finna gerandann nema hann viðurkenni það sjálfur.“

Þá segir Silja að svo margir gangi um hesthúsið þar sem hryssurnar eru geymdar að það hefði verið erfitt að bera saman fingraför til að finna meintan geranda.

Í frétt um málið frá því í byrjun janúar segir að eiginmaður Silju hafi, að morgni þriðjudagsins 27. desember, séð kassa innst í einni stíunni sem ekki átti þar heima. Hann fjarlægði kassann og kláraði morgunverkin. Um kvöldið var kassinn kominn aftur inn í stíu.

Ummerki eftir sleipiefni fundust svo á tveimur hryssum. „Hvað gerðist nákvæmlega veit ég auðvitað ekki,“ segir Silja sem telur þó yfirgnæfandi líkur á að dýrin hafi verið misnotuð kynferðislega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Reiður út í United sem bannaði honum að fara í gær

Reiður út í United sem bannaði honum að fara í gær
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

CIty sagt undirbúa að Guardiola hætti í sumar – Þessir þrír eru á blaði

CIty sagt undirbúa að Guardiola hætti í sumar – Þessir þrír eru á blaði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hraunaði yfir blaðamann – „Slímugt og huglaust sníkjudýr“

Hraunaði yfir blaðamann – „Slímugt og huglaust sníkjudýr“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hélt framhjá einni fegurstu konu heims með sjónvarpskonu – Nágrannar kvörtuðu undan stunum frá húsinu

Hélt framhjá einni fegurstu konu heims með sjónvarpskonu – Nágrannar kvörtuðu undan stunum frá húsinu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Riftu samningi fyrrum United-mannsins

Riftu samningi fyrrum United-mannsins
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tveir ungir til Arsenal

Tveir ungir til Arsenal
433Sport
Í gær

Ofurtölvan stokkar spilin – Jákvætt fyrir Arsenal en hörmulegt fyrir erkifjendurna

Ofurtölvan stokkar spilin – Jákvætt fyrir Arsenal en hörmulegt fyrir erkifjendurna
433Sport
Í gær

Flugfreyja opnar sig um hvað þekktur maður og eiginkona hans gerðu um borð

Flugfreyja opnar sig um hvað þekktur maður og eiginkona hans gerðu um borð