fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Eyjan

Kópavogsbær uppfyllir lífskjara- og þjónustustaðla WCCD (Vottað)

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 12. apríl 2019 17:30

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kópavogsbær hefur fengið vottun um að bærinn uppfylli lífskjara- og þjónustustaðal World Council on City Data (WCCD). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Í staðlinum eru 100 vísar, sem staðallinn skilgreinir hvernig beri að mæla. Vísarnir segja til um félagslegan, efnahagslegan og umhverfislegan árangur sveitarfélags. Með því að uppfylla staðalinn er Kópavogur orðið hluti af hópi sveitarfélaga á alþjóðavísu sem öll mæla á sama hátt þessa 100 vísa og eru því samanburðarhæfir árangursmælar. Kópavogur fékk platínuvottun fyrir að skila inn 97 vísum.

Kópavogsbær mun nýta mælingar úr staðlinum til að fylgjast með stöðu sveitarfélagsins á alþjóðavísu auk þess sem staðallinn nýtist til þess að fylgjast með stöðu mála á milli ára. Mælingar úr staðlinum munu einnig nýtast til að mæla framgang í innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi.

„Hjá Kópavogsbæ höfum við undanfarin ár unnið markvisst að því að bæta mælingar á ýmsum þáttum í starfi sveitarfélagsins. Það nýtist okkur til að fylgjast betur með árangri af settum stefnum og markmiðum og gerir rekstur sveitarfélagsins betri,“

segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Vísarnir snerta á mörgum þáttum og voru ýmsar áskoranir fyrir sveitarfélagið að nálgast gögn og upplýsingar. Ríkt samstarf þurfti við ríkisstofnanir, fyrirtæki og á milli sviða Kópavogsbæjar við innleiðingu og mælingu vísanna. Meðal stofnana, byggðasamlaga og fyrirtækja sem koma að verkefninu með gagnasöfnun eða upplýsingagjöf má nefna Velferðarráðuneytið, Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Vinnumálastofnun, Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Þjóðskrá Íslands, Hagstofu Íslands, Embætti landlæknis, Landspítalann, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Lögreglu höfuðborgarsvæðisins, Strætó, Sorpu, Heilsugæslustöðvar Kópavogs, Gallup og áfram mætti telja.

WCCD er stofnun sem heldur utan um samanburðarhæfingar mælingar sveitarfélaga  á alþjóðavísu. WCCD hefur þróað staðalinn sem ber númerið ISO 37120. Hann er fyrsti alþjóðlegi staðallinn um gögn sem tengjast sveitarfélögum og heldur utan um skrá sveitarfélaga sem fengið hafa vottun á ISO 37120. Á vefsíðu tileinkaðri staðlinum, http://www.dataforcities.org/, má nálgast aðgengilegar upplýsingar um vottuð sveitarfélög og stöðu árangursmælinga þeirra.

Dr. Patricia L. McCarney, framkvæmdastjóri WCCD, segir framúrskarandi að skrá 97 af 100 vísum og bendir á að óháðir vottunaraðilar hafi lofað vinnu bæjarins, nákvæmni og gagnaöflun: „Nálgun Kópavogsbæjar ætti að vera borgum um heim allan fyrirmynd að mati vottunaraðila,“ segir McCarney.

Þess má geta að Kópavogsbær er einnig gæðavottað sveitarfélag (ISO 9001) og hefur skoðað félagslegar framfarir í bæjarfélaginu með aðferðafræði vísitölu félagslegra framfara,  (e. Social Progress Index, SPI). Þá er Kópavogsbær í samvinnu við OECD um gerð mælikvarða sem nýta má við innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti síðastliðið haust að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í yfirstefnu bæjarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Hannes Hólmsteinn sakar Gunnar Smára um að vera Steinunn Ólína – „Þú ert svo illa að þér og ólæs“

Hannes Hólmsteinn sakar Gunnar Smára um að vera Steinunn Ólína – „Þú ert svo illa að þér og ólæs“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Stórmerkileg klíka; Morgunblaðið – Katrín Jakobsdóttir – Sjálfstæðisflokkurinn

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Stórmerkileg klíka; Morgunblaðið – Katrín Jakobsdóttir – Sjálfstæðisflokkurinn