Bókunarsíðan Golfscape nefnir Brautarholtsvöll á Kjalarnesi sem einn af 100 bestu golfvöllum heims, eða í 62. sæti, í nýútgefnum lista. Þar er að finna golfvelli frá öllum heimshornum og er Brautarholtsvöllur sá eini frá Íslandi sem hlýtur náð fyrir augum Golfscpe.
Greint er frá þessu á vef Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG). GBR var stofnaður árið 2011, en völlurinn var opnaður árið 2012. Grunnskipulag Brautarholtsvallar er hannað af Edwin Rögnvaldssyni, en einnig kom Michael Kelly, bandarískur golfarkitekt að hönnun hans og Ellert Þórarinsson vallarstjóri, hefur haldið utan um uppbygginguna, en hann er menntaður frá Elmwood í Skotlandi, Mekka golfsins, en hann hefur starfað hjá Golfklúbbi Akureyrar, Skjeberg Golfklubb í Noregi og nú hjá Golfklúbbi Brautarholts.
Í fyrsta sæti listans er hinn sögurfrægi St. Andrews völlur í Skotlandi, en af völlum annarra Norðurlanda má nefna Lofoten Links í Noregi sem er í 40. sæti, Great Northern í Danmörku, sem situr í 67. sæti og Falsterbro í Svíþjóð sem er í 68. sæti.
Við valið á listanum var sérstök áhersla lögð á að koma golfvöllum á framfæri sem eru einstakir, eftirminnilegir og bjóða gestum upp á upplifun sem er í hæsta gæðaflokki.