fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fókus

Skrípateiknari og grafíker í Kolaportinu á sunnudag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 2. febrúar 2019 15:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir upprennandi listamenn, þeir Arnar Þór Kristjánsson og Brynjólfur Sveinn Ívarsson, munu gefa listunnendum færi á að eignast listaverk eftir sig í Kolaportinu næstkomandi sunnudag þar sem þeir munu sýna verk sín og miðla list sinni milliliðalaust til fagurkera.

Arnar Þór Kristjánsson er þrítugur skrípateiknari úr Reykjavík sem dundar sér við allskonar skopmyndir, portretta og myndasögur sem eru svo birtar á vefsíðunni arnarart.com og facebook-síðunni Arnar Kristjansson Art. Menntaður á teiknibraut Myndlistaskólans í Reykjavík og með BFA í teiknimyndagerð frá Savannah College of Art and Design í Georgíufylki, BNA. Hefur upp á síðkastið verið að gera skrípamyndir af áhugasömum viðskiptavinum þar sem umræddum kúnnum er brugðið í líki alls kyns furðudýra sem eiga það sameiginlegt að vera víkingar.

Brynjólfur Sveinn Ívarsson er laganemi og stjórnmálafræðingur sem býr til grafíkverk og framkallar cyanotype sem er 19. aldar framköllunaraðferð. Cyanotype-tæknin var lengi vel notuð til að fjölfjalda skjöl og byggingateikningar. Sólarljósið framkallar myndirnar á pappírinn og voru þessar myndir oft nefndar sólmyndir. Helstu viðfangsefni hans eru fiskar og stafrænar klippimyndir sem framkallaðar eru með fyrrgreindri aðferð.

Þeir munu sýna og selja verk sín í Kolaportinu á milli 11-17 næstkomandi sunnudag þann 3. febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Kardashian-fjölskyldan í áfalli: Náin vinkona Caitlyn Jenner lést í bílslysi aðeins 29 ára gömul

Kardashian-fjölskyldan í áfalli: Náin vinkona Caitlyn Jenner lést í bílslysi aðeins 29 ára gömul
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín segist ekki geta starfað eðlilega eftir krabbameinsmeðferðina – „Mjög erfitt“

Katrín segist ekki geta starfað eðlilega eftir krabbameinsmeðferðina – „Mjög erfitt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kate Beckinsale útskýrir af hverju hún er búin að grennast svona mikið

Kate Beckinsale útskýrir af hverju hún er búin að grennast svona mikið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórstjarnan lét óræða athugasemd falla um erfiðleika lífsins

Stórstjarnan lét óræða athugasemd falla um erfiðleika lífsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ástarleikur: Eiður Smári og Halla Vilhjálms saman í golfi

Ástarleikur: Eiður Smári og Halla Vilhjálms saman í golfi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Haukur varð vitni að spauglegu atviki – „Hvað sagði konan aftur að ég notaði í skóstærð?“

Haukur varð vitni að spauglegu atviki – „Hvað sagði konan aftur að ég notaði í skóstærð?“