fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Friðrik Rúnar: Talaði við Mola sem hélt á honum hita – „Ég hefði ekki meikað aðra nótt“

Friðrik Rúnar villtist á rjúpnaveiðum – Var utandyra í 50 klukkustundir

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 21. nóvember 2016 17:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér finnst eins og það hafi skipt sköpum fyrir mig að hafa hundinn; önnur lífvera, vinur minn, búinn að eiga hann í sjö ár, gat talað við hann og sinnt honum og hann hélt á mér hita. Hann myndaði ofboðslega mikinn hita.“

Þetta segir Friðrik Rúnar Garðarsson, læknir og rjúpnaskytta, í viðtali sem sýnt verður í Kastljósi í kvöld. Friðrik fannst í gærmorgun eftir að hafa villst á rjúpnaveiðum á Fljótsdalshéraði á föstudag. Hafði hans verið leitað í tæpa tvo sólarhringa. Ljóst er að ekki mátti miklu muna að verr færi enda hafði Friðrik verið utandyra, í kulda og erfiðum aðstæðum, í um 50 klukkustundir.

Í stiklu vegna Kastljóssþáttarins í kvöld segir Friðrik að labrador-hundurinn hans, Moli, hafi létt honum lífið svo um munar. Stikluna má sjá hér að neðan en hún birtist frétt á Facebook-síðu Kastljóss. Í henni má einnig sjá stutt viðtal við kærustu Friðriks Rúnars, Sunnefu Pálsdóttur, sem lýsir því hvernig henni varð við þegar hún fékk fréttirnar af því að Friðrik væri fundinn, heill á húfi.

„Ég hefði ekki meikað aðra nótt,“ segir Friðrik svo í annarri stiklu sem birtist á vef RÚV.is nú síðdegis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Í gær

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað