fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fókus

Stórbætt aðgengi að íslenskri listasögu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 19. desember 2018 16:00

Ásmundarsafn, sem er hluti af Listasafni Reykjavíkur. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinnuhópur á vegum Listasafns Íslands hefur ásamt Myndstefi, höfundaréttarsamtökum myndhöfunda, unnið að gerð samnings um myndbirtingu höfundaréttarvarinna verka. Við undirritun hans munu söfn fá leyfi til að birta ljósmyndir á veflægri safnmunaskrá af safnkosti í höfundarétti. Með þessu stóreykst aðgengi almennings og skóla að upplýsingum úr safnmunaskrám.

Myndstef mun undirrita slíka samninga um birtingu höfundaréttarvarins efnis við Listasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands fimmtudaginn 20. desember kl. 16:30, að viðstaddri Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Undirritunin fer fram í Listasafni Íslands, segir í tilkynningu frá Listasafninu.

Aðgengi skóla og almennings að upplýsingum úr safnmunaskrám listasafna á netinu hefur til þessa nær eingöngu einskorðast við textaupplýsingar en nú verður mögulegt að birta ljósmynd af verkum (stafræn birting) ásamt textaupplýsingum. Með þessum nýja samningi verður því íslensk sjónlist gerð mun aðgengilegri til kennslu og fyrir almenning. Samningurinn er saminn með öll söfn í huga því almennt heyrir alltaf einhver hluti safnkosts undir höfundarétt sjónlista. Öll söfn sem hafa öðlast viðurkenningu safnaráðs eða eru í eigu íslenska ríkisins og starfa eftir lögum geta gengið til samninga við Myndstef. Viðkomandi safn greiðir árlegt gjald til Myndstefs og skuldbindur sig til að gæta sæmdarréttar við skráningar og merkingar samkvæmt lögum um höfundarétt. Óheimilt verður að nota ljósmyndir sem birtast úr safnmunaskránum af höfundaréttarvörðu efni í fjárhagslegu skyni. Myndir eru vatnsmerktar en nú sem áður, þarf að hafa samband við viðkomandi safn og kaupa leyfi til slíkra nota og greiða höfundarétt af notkun í samræmi við samninga.

Í safneign Listasafns Íslands eru nú um 13.000 verk. Safnið fer sjálft með höfundarétt nokkurra listamanna sem hafa ánafnað safninu eða þjóðinni þann rétt. Eins eru verk listamanna sem ekki eru lengur í höfundarrétti í safneign Listasafns Íslands. Markmiðið er að koma myndum af safnkosti safnsins á vefinn í áföngum á næstu misserum og veita með því ríkulegt aðgengi að íslenskri listasögu, ekki síst samtímalistar.

Þjóðminjasafn Íslands varðveitir einnig fjölbreyttan listrænan safnkost en stærsta safnheild þess er Ljósmyndasafn Íslands þar sem nú eru um 6,7 milljón ljósmyndir. Stærstur hluti þess er í söfnum frá um 240 ljósmyndurum sem spanna tímann frá upphafi ljósmyndunar á Íslandi um 1860 og til dagsins í dag. Stór hluti ljósmyndaefnisins er í höfundarétti og hefur safnið gert sérstaka samninga við handhafa höfundaréttar, gengið frá kaupum á höfundarétti og líka fengið slíkan rétt í arf. Það er söfnunum mikilvægt að ganga til þessara samninga við Myndstef í ljósi þess að ákveðin óvissa hefur ríkt um heimildir safna til birtinga úr safnmunaskrám á netinu.

Safnmunir Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands eru skráðir á www.sarpur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 1 viku

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs