fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Urta Islandica: Sælkeravörur úr íslenskri náttúru

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 21. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síróp úr jarðsjó

Urta Islandica er spennandi nýtt fyrirtæki með úrval af áhugaverðum vörum sem gaman er að prófa sig áfram með. „Það nýjasta hjá okkur núna er sýróp sem við framleiðum úr íslenskum jarðsjó. Sýrópið má nota í ýmsa matargerð og eins og allt sem við framleiðum hér hjá Urtu, hentar það sérstaklega vel í klassíska íslenska matseld. Okkur finnst fátt skemmtilegra en að taka hefðbundnar íslenskar matvörur, snúa aðeins upp á þær og endurhugsa,“ segir Guðbjörg Lára Sigurðardóttir, markaðsstjóri Urtu.

Ómengaður íslenskur jarðsjór

 

Fyrirtæki í sífelldri þróun

Urta hefur þróast mjög í kringum ferðamannastrauminn en undanfarið hefur fyrirtækið verið að vinna sig í átt að útflutningi og er það næsta skref. „Við sérhæfum okkur í framleiðslu á matargjafavöru úr íslenskum jurtum og berjum. Síðan framleiðum við íslensk jurtakryddsölt þar sem við blöndum berjunum og jurtunum við saltið. Þetta er allt handtínt og pakkað. Við erum sem sagt með jurtakryddsölt, sýróp, sultur, kex og jurtate – og nær vörulínan okkar yfir 200 vörutegundir,“ segir Lára. Hún segir frá því að sýrópið frá Urta Islandica sé mjög vinsælt í t.d. kokteilgerð á veitingastöðum og kaffi eða eftirréttagerð.

Girnilegt jurtakrydd

 

Fæst um land allt

Urta Islandica er með starfsstöðvar á þremur stöðum og selur vörur sínar í verslanir um allt land. Auk þess er vefverslun á síðunni urta.is þar sem jafnframt má fræðast um fyrirtækið og vörurnar. Urta Islandica er ekta fjölskyldufyrirtæki en stofnendur eru hjónin Þóra Þórisdóttir og Sigurður Magnússon. Á heimili þeirra hjóna að Austurgötu 47 í Hafnarfirði var fyrirtækið stofnað og þar er ennþá tilraunaeldhús, skrifstofa og verslun. Lára, dóttir þeirra, sér um markaðsmál og hönnun en bræður hennar tveir sjá um vélar og framleiðsluna. Þá eru einnig fimm aðrir starfsmenn í Urta-fjölskyldunni.

Girnilegt jurtate í fallegum pakkningum

„Við erum með flotta framleiðsluaðstöðu að Básvegi 10 í Reykjanesbæ og þar getur fólk fengið að horfa inn í framleiðsluferlið jafnframt því að skoða vöruúrvalið í verslun okkar á staðnum. Verslunin og framleiðslan á Básvegi gengur undir nafninu Sjóbúð, en þar eru framleidd öll okkar jurtakryddsölt, jurtasýróp, sultur og þar erum við einnig með okkar eigin borholu með íslenskum matvælavottuðum jarðsjó.“ Önnur framleiðslustöð er síðan að Hafnarbraut 11 á Höfn í Hornafirði, í gömlu sundlaug Hornfirðinga, þar fer fram öll jurtavinnsla og framleiðsla á jurtatei.

Nýjar og hentugar umbúðir

Margir þekkja saltið frá Urtu en nú er hægt að fá það í hentugum nýjum umbúðum með áfastri saltkvörn. „Það hefur aldrei verið auðveldara að strá þara-hvítlaukssaltinu okkar á bökuðu kartöfluna eða, lakkríssalti yfir súkkulaðibúðinginn,“ segir Lára. „Nú er einnig hægt að fá jurtakrydd Urtu í hrististaukum með strágötum. Vinsælasta afurðin okkar er jurtakryddsaltið, Black Lava salt, sem fer einfaldlega vel með öllum mat ásamt því að líta glæsilega út.“

Spennandi salt sem skemmtilegt er að leika sér með í matargerðinni

Vörulínur Urtu eru fjölbreyttar og það ættu allir geta fundið sitt uppáhald. Fyrirtækið er í stanslausri þróun og búast má við spennandi nýjungum frá því í framtíðinni.

Sjá nánar á urta.is
Facebook
Instagram
Netpóstur: urta@urta.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum