Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, greinir frá því á Facebook hversu mikið öryrki fær í desemberuppbót, fyrir og eftir skatt. Hann ber það saman við þá desemberuppbót sem þingmenn fá, en Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, greindi frá því í gær að hann fái rúmar 180 þúsund krónur í desemberuppbót.
Sjá nánar: Þingmenn með háa desemberuppbót – „Mér finnst þetta of mikið“
Það er mun meira en öryrkjar og aldraðir fá:
„Ég fékk rétt í þessu sent yfirlit yfir greiðslur örorkubóta frá Tryggingastofnun. Þar kemur fram að desemberuppbót er kr.43.103 eða kr.27.180 eftir skatt. Í heildina fékk viðkomandi greiddar heilar 230.636 kr. fyrir útgjöldum heimilisins og komandi jólahátíð, eftir að hafa greitt 49.639 kr. í skatt. Það er ekki mikill hátíðarbragur yfir kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega svo mikið er víst. Svo er það sama uppá teningnum hjá stjórnvöldum sem fá 181.050 kr. í jólakjararáðsbónus (orlofsuppbót innifalin, ef rétt reynist).“
Ragnar Þór skorar á Alþingi að skattleggja ekki desemberuppbót þeirra sem minnst mega sín:
„Við hljótum að geta gert betur við þá sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. Ég hreinlega skammast mín fyrir að vera hluti af samfélagi sem kemur svona fram við okkar veikustu bræður og systur. Ég skora á stjórnvöld að gera betur. Ég skora á Alþingi, ef einhver vottur er af sjálfsvirðingu eftir, að skattleggja ekki fátækt. Allavega ekki í desember. Í það minnsta að taka ykkur ekki meira en þið eruð tilbúin að skammta öðrum.“