Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en ákvörðunin var kynnt í morgun.
„Hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs var meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt á seinni hluta ársins er spáð 4,4% hagvexti á árinu öllu í nóvemberhefti Peningamála. Það er tæplega 1 prósentu meiri vöxtur en bankinn spáði í ágúst. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hagvexti á næstu misserum og að spenna hverfi úr þjóðarbúskapnum,“ segir í tilkynningunni.
Bent er á það að verðbólga hafi verið 2,8% í október og munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi ekki verið álíka lítill í rúm fjögur ár.
Tilkynning Seðlabankans um hækkun stýrivaxta fer illa í verkalýðsforystuna og gagnrýndi Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ, hana harðlega á Facebook-síðu sinni í morgun.
„Þetta er nánast stíðsyfirlýsing og líkurnar á hörðum átökum á íslenskum vinnumarkaði hafa aukist umtalsvert eftir þessa ákvörðun Seðlabankans, enda er ein af okkar aðalkröfum að vextir á Íslandi lækki,“ sagði Vilhjálmur.
Í tilkynningu Seðlabankans segir að áfram dragi úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti komi að innflutningsverð hafi hækkað umtalsvert að undanförnu. „Að hluta endurspeglar það hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði en gengi krónunnar hefur einnig lækkað frá því í ágúst.“
Í tilkynninu Seðlabankans segir að horfur séu á að verðbólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir markmiði á næsta ári. Þá hafi verðbólguvæntingar hækkað undanfarið og eru nú yfir markmiði á alla mælikvarða. „Verðbólguhorfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið.“
Þá segir að aukin verðbólga og hærri verðbólguvæntingar síðustu mánuði hafi lækkað raunvexti Seðlabankans umfram það sem æskilegt er í ljósi núverandi efnahagsástands og -horfa. Því er nauðsynlegt að hækka vexti bankans nú, að mati bankans.
„Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.“
Í tilkynningunni ítrekar peningastefnunefnd að hún hafi bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. „Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.“