

Flatbakan er klassískur réttur sem virðist aldrei ætla að detta úr tísku. Margir eiga sína uppáhalds tegund af pítsu, en margar af skærustu stjörnum heims eru miklir pítsuunnendur.
Michelle Obama, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, naut þess að fá sér pítsu í garðinum á meðan hún kallaði Hvíta húsið sitt heimili. Michelle talaði mikið fyrir bættri lýðheilsu og því kemur ekki á óvart að hún hafi dúndrað fullt af grænmeti á pítsuna sína.

Vinirnir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Sarah Palin, sem eitt sinn var í framboði sem varaforseti, elska bæði pítsu. Takið eftir að þau borða flatbökuna með hnífi og gaffli.

Tina Fey túlkaði Liz Lemon í þáttunum 30 Rock, en Liz þessi var sólgin í pítsu. Tina átti ekki langt að sækja innblásturinn þar sem hún er líka ofboðslega hrifin af pítsu, sérstaklega sneið frá veitingastaðnum Pica‘s í heimabæ sínum Upper Darby í Pennsylvaníu.

Óskarsverðlaunahátíðin árið 2014 var eftirminnileg fyrir margar sakir, til dæmis þegar Ellen DeGeneres kom áhorfendum á óvart með fullt af pítsum fyrir svangar stjörnur. Meðal þeirra sem gúffuðu í sig voru stórleikkonurnar Meryl Streep og Julia Roberts, á meðan Brad Pitt útdeildi diskum.

Önnur leikkona á Óskarnum sem fékk sér pítsu var Jennifer Lawrence, sem beið ekki einu sinni eftir disk.

Modern Family-stjarnan Sarah Hyland brá á leik í viðtali við tímaritið Glamour á SAG-verðlaunahátíðinni árið 2015 og fékk sér glóðvolga pítsu á rauða dreglinum.

Systurnar Kylie og Kendall Jenner eru miklar flatbökukonur og sáust meðal annars fá sér sneið í eftirpartíi eftir Golden Globe-verðlaunahátíðina í fyrra.

Grínarinn Will Ferrell nældi sér í pítsu fyrir hafnaboltaleik og lá við ástaratlotum á milli hans og pítsunnar.

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel er annálaður pítsamaður og veit fátt betra en nokkrar sneiðar af þessum klassíska rétti.

Eins og systur sínar Kylie og Kendall, eru Kim og Khloé Kardashian mjög hrifnar af pítsum. Hér eru þær ásamt vini sínum Jonathan Cheban á pítsastaðnum Joe‘s Pizza í New York.

Leikkonurnar Reese Witherspoon og Mindy Kaling tóku sér pásu frá tökum á A Wrinkle in Time til að fá sér pítsu. Ku þetta hafa verið besta pítsa sem leikkonurnar höfðu smakkað.

Fyrirsætan Chrissy Teigen er mikill matgæðingur og gaf nýverið út matreiðslubók. Þegar hún ferðast til Ítalíu ásamt eiginmanni sínum, tónlistarmanninum John Legend, fara þau ávallt til Napólí og smakka nánast allar pítsur sem í boði eru.

Söng- og leikkonan Selena Gomez er ávallt á ferð og flugi og þá er gott að vera með aðstoðarkonu sem færir manni ylvolga pítsu þegar mikið liggur við.
