fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Ískraft: Að vinna í réttu ljósi

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 19. október 2018 18:00

Það verður spilað í Akraneshöllinni í næstu umferð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ískraft er allsherjar rafmagnsheildsala og veitir allt milli himins og jarðar sem snertir rafmagn: rafveitubúnað, innlagnarefni, lagnaleiðir, kapla, ljósleiðara og svo framvegis. Undir þetta heyrir að sjálfsögðu lýsingarbúnaður af öllu tagi.

Ískraft er í eigu Húsasmiðjunnar og í verslunum hennar er Philips-ljósabúnaður fyrir heimili, sem og almennur raflagnabúnaður. En í verslunum Ískraft, sem eru fjórar talsins á landinu, er höfuðáhersla á sölu, þjónustu og ráðgjöf við fyrirtæki, stór og smá, sem og opinbera aðila.

„Við erum með hágæðavörur í sérpöntunum, til dæmis útiljós, sundlaugaljós, iðnaðarlýsingu, lýsingu í söfn, götulýsingu og lýsingu í jarðgöngum svo fátt sé nefnt,“ segir Haukur Tómasson, vörustjóri lýsingarbúnaðar hjá Ískraft.

Volvo Brimborg Erco. Lýsingarhönnun: Svanbjörn Einarsson

Rétt lýsing er mikilvæg – LED-byltingin þarf að komast í reglugerðir

Ískraft hefur selt sundlaugaljós í flestar sundlaugar landsins og er með rammasamninga við flest sveitarfélög varðandi lýsingu í stofnunum, útilýsingu og götulýsingu. Nánast allur lýsingarbúnaður sem Ískraft selur er knúinn LED-ljósgjafa og LED er að valda byltingu í lýsingu, annars vegar vegna þess hvað ljósgjafinn endist miklu lengur og hins vegar vegna þess að lýsingin verður miklu markvissari.

Ískraft er meðal annars framarlega í iðnaðarlýsingu og sér um að lýsa stór vinnusvæði, útisvæði á vinnustöðum, vöruskemmur og fleira. „Við mælum með því að notast sé við lýsingarhönnun frá lýsingarhönnuðum en ef það er ekki gert þá getum við gefið góð ráð,“ segir Haukur en Ískraft vinnur mjög oft eftir fullbúinni lýsingarhönnun. Haukur segir að rétt lýsing sér afar mikilvæg en stundum sé mikilvægi hennar vanmetið.

Bakkagöng. Almenn lýsing og kantlýsing.

Haukur bendir líka á að LED-lýsing sé flóknari og auka þurfi fræðslu um hana. Enn fremur sé mikilvægt að betur sé gerð grein fyrir lýsingu í reglugerðum.

„Á næstu fimm til sex árum verður skipt um lýsingu í flestum götustaurum á landinu. LED kemur með byltingu í götulýsingu þar sem nú er ekki bara keyptur götulampi með ákveðnum styrkleika heldur er LED útbúið linsutækni sem tekur mið af þáttum á borð við umferðarhraða, breidd götu og hæð ljósastaursins – lýsingin verður þannig mun stefnuvirkari.“


Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar timbursala (Bree lighting).

Ískraft ætlar sér stóra hluti í endurnýjun götulýsingar á landinu enda er fyrirtækið afar vel í stakk búið til að takast á við það mikilvæga verkefni.

Ískraft er með verslun að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi, Hjalteyrargötu 4 á Akureyri, Iðavöllum 12 í Reykjanesbæ og Eyrarvegi 42 á Selfossi. Nánari upplýsingar um starfsemina og vöruúrvalið eru á vefsíðunni iskraft.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum