fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
433Sport

Bæði karlar og konur dæla kynfæramyndum á Rúrik – ,,Strákarnir í landsliðinu skjóta á mig í hvert skipti sem ég set á Instagram“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 13. september 2018 08:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu er á forsíðu Glamour þessa vikuna og er í ítarlegu viðtali við blaðið.

Rúrik er líklega frægasti íþróttamaður Íslands í dag en hann vakti gríðarlega athygli á Heimsmeistarmótinu í sumar.

Þar fékk hann yfir milljón fylgjendur og stærstur hluti af því voru konur í Suður-Ameríku.

Rúrik var einn efnilegasti knattspyrnumaður sem Ísland hefur séð og foreldrar hans færðu fórnir svo að hann gæti elt draum sinn.

„Svo ég gæti átt eitthvað til að lifa sómasamlegu lífi. Ég fékk ekki mikinn pening á þessum samningi og þau aðstoðuðu mig. Mamma hefur alltaf hvatt mig í öllu og hrósar mér eftir hvern einasta leik, sama hvað ég hef gert, á meðan pabbi hefur alltaf getað fundið eitthvað sem ég hefði getað gert betur. Haldið mér á jörðinni,“ segir Rúrik við Glamour.

Á ekki von á því að búa á Ísland
Rúrik veit ekki hvað hann fer að gera þegar ferlinum lýkur en hann á ekki von á því að búa á Íslandi. „Það er svo langt síðan ég bjó á Íslandi og það er alltaf gott að koma heim. En ég veit það ekki, mér finnst fullmikil neikvæðni á Íslandi fyrir minn smekk. En maður á aldrei að segja aldrei svosem, en ég held að ég muni ekki búa á Íslandi aftur.“

Fær kynfæramyndir frá báðum kynum
Rúrik fær mikið af skilaboðum í gegnum Instagram og þar koma kynfæramyndir, bæði eru það limir og sköp. „Nei, þetta truflar mig ekkert. Ég hef val um hvort ég opna þetta eða ekki, og kannski er ég bara orðinn svona vanur þessu eða eitthvað. Þetta allavega truflar mig mjög lítið,“ segir Rúrik sem er vanur því að fá skot frá liðsfélögum sínum vegna frægðarinnar á Instagram.

Strákarnir í landsliðinu láta Rúrik heyra það eftir vinsældir hans. „Við erum í grúppu, strákarnir í landsliðinu, þar sem þeir eru óhræddir við að skjóta á mig. Eiginlega í hvert einasta sinn sem ég set inn á Instagram Story þá þá kemur eitthvað frá þeim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu