Talið er að rekja megi dauða 77 ára konu, Hildegard Whiting, til þess að þurrís var geymdur í bifreið sem hún var farþegi í. Málið sem um ræðir átti sér stað í Washington-ríki á föstudag.
Rúmlega fimmtugur sonur konunnar starfar sem sendibílstjóri fyrir Dippin‘ Dots-ísbúðirnar og geymdi hann þurrís í fjórum kössum í bifreið sinni yfir nótt. Kona mannsins skaust á bílnum til að sækja Hildegard um kvöldið en þegar sonurinn vaknaði til að fara í vinnu morguninn eftir sá hann að eiginkonan og móðirin höfðu ekki skilað sér heim.
Eftir stutta leit fannst bifreiðin skammt frá og voru Hildegard og tengdadóttir hennar án meðvitundar. Hildegard var svo úrskurðuð látin á sjúkrahúsi stuttu síðar á meðan tengadóttir hennar var með lífsmarki en þó talin í lífshættu.
Talið er að nokkur atriði hafi leitt til þess að svona fór. Lögregla telur líklegt að kassarnir sem geymdu þurrísinn hafi ekki verið mjög þéttir; þurrís er ekkert annað en frosinn koltvísýringur og því lofttegund sem meðal annars má finna í útblæstri bíla. Súrefnisskortur er talinn hafa orðið í bílnum sem er nýlegur.
„Það voru margir samverkandi þættir sem urðu til þess að svona fór,“ segir Ed Troyer, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Pierce-sýslu. „Þurrísinn sem slíkur er ekki að fara að drepa neinn og á þessum tímapunkti teljum við að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.“