– Fyrstu sendingar af smækkaðri leikjatölvunni seldust upp hjá Ormsson á nokkrum klukkutímum


„Það var komin röð fyrir utan þegar við opnuðum klukkan tíu á þriðjudag og fyrsta og önnur sending voru uppseldar um hálf tólf leytið sama dag,“ segir Kristinn Valur Kristófersson, deildarstjóri hjá Ormsson, um forsölu raftækjaverslunarinnar á leikjatölvunni Nintendo NES Classic Edition.
Leikjatölvan, sem er smækkuð útgáfa af hinni sígildu Nintendo NES-tölvu sem naut mikilla vinsælda á níunda áratug síðustu aldar, er væntanleg í verslanir í nóvember. Tölvan inniheldur 30 klassíska Nintendo-leiki, kostar hér rétt tæpar tólf þúsund krónur en um takmarkað magn er að ræða. Ormsson, sem er umboðsaðili Nintendo á Íslandi, tilkynnti á mánudag að forsala á fyrstu sendingum tölvunnar myndi hefjast daginn eftir. Kristinn vill ekki gefa upp hversu margar tölvur seldust á þriðjudagsmorgun en segir að um þó nokkuð magn hafi verið að ræða. Mikil eftirspurn hafi ekki komið starfsfólki verslunarinnar á óvart.
„Það eru svo ofboðslega margir sem eiga góðar minningar sem tengjast gömlu NES-vélinni og fjöldi fólks í kringum þrítugt og rúmlega það sem ólst upp með henni á sínum tíma. Við reiknum frekar með því að við munum láta vita á samfélagsmiðlum og vefsíðu okkar þegar við verðum búnir að fá staðfest magn. Við erum að vinna í því að tryggja okkur nægilegt magn fyrir jólin,“ segir Kristinn.