Sendiherra Ísraels kom hingað til lands í vikunni og hélt blaðamannafund. Nokkrir fjölmiðlar mættu, sendiherrann talaði í hljóðnema – en það vakti meiri athygli að tónlistarmaðurinn Páll Óskar vildi ekki hitta sendiherrann. Einhverjir sögðu að menn ættu að hlusta á sjónarmið sendiherrans – Eyvindur Karlsson svaraði því á Facebook og sagði:
Þjóðarmorð er ekki sjónarmið.
Sendiherrann heitir Raphael Schutz og situr í Noregi. Þar hefur honum tekist að gera allt vitlaust með yfirlýsingum sínum. Í apríl lýsti hann því til dæmis yfir að Norðmenn væru upp til hópa eftirkomendur Quislings og ekki væri von á öðru frá þeim en gyðingahatri.
Það er frekar viðkvæmt í Noregi. Vidkun Quisling var leiðtogi norskra nasista í stríðinu, leppur Hitlers, en var hengdur í stríðslok. Orðið kvistlingur hefur orðið alþjóðlegt heiti um svikara og landráðamenn af lægstu sort.
Norðmenn hafa löngum verið stoltir af harðri andspyrnu sinni gegn Hitlers-Þýskalandi. En sendiherrann skrifaði að örlítið brot Norðmanna hefði verið almennilegt fólk. Orð sendiherrans komust í alþjóðlega fjölmiðla, en var mótmælt af Norðmönnum sjálfum, meðal annars Höyre, flokki Ernu Solberg forsætisráðherra.