fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Coerver Iceland knattspyrnuþjálfun: Markmið að allir njóti fótboltans betur

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 19. maí 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Coerver Iceland sérhæfir sig í knattspyrnuþjálfun og er hluti af Coerver Coaching, sem var stofnað árið 1984 af Alfred Galustian og Chelsea-goðsögninni Charlie Cooke, undir áhrifum hins goðsagnakennda hollenska þjálfara, Wiel Coerver. 


Stofnendur Coerver Coaching, þeir Alfred Galustian og Charlie Cooke, ásamt bandarísku goðsögninni Kristine Lilly að taka við viðurkenningu frá Fífa á 30 ára afmæli Coerver Coaching.

Þjálfunin byrjaði hér á landi árið 2013 og er Heiðar Birnir Torleifsson framkvæmdastjóri og yfirþjálfari Coerver Iceland. „Við hjá Coerver erum með okkar eigin kennslu- og æfingaáætlun og í dag störfum við í 44 löndum og þjálfunin er í boði allt árið um hring.

Við byrjuðum á Íslandi í ársbyrjun árið 2013, fórum rólega af stað og héldum 3–4 námskeið á ári um páska og jól. Um einu og hálfu ári síðar fórum við að gefa meira í og buðum upp á reglulegri helgarnámskeið og vikunámskeið þar sem iðkendur koma einu sinni í viku í 4–8  vikur,“ segir Heiðar.

Coerver Iceland hefur átt í góðu samstarfi við félögin í landinu og nú síðustu ár verið í  mjög góðu samstarfi við Breiðablik og einnig við Fram. Iðkendur eru á öllum aldri og frá öllum félögum. „Oftast er aldurinn nemendur í 1.–8. bekk þótt við förum alveg upp í 10. bekk, en þetta hefur þróast svona hjá okkur. Svo vinnum við einnig með eldri leikmönnum, það er 2. flokki og leikmönnum í meistaraflokki, en það er meira einkaþjálfun og erum við þá að hjálpa leikmönnum með einhverja ákveðna þætti í þeirra leik.“

Auk námskeiða um helgar og þar sem iðkendur mæta einu sinni í viku í nokkrar vikur er einnig boðið upp á stærri námskeið um jól og páska sem eru oftast þrír dagar hvert námskeið. Öll námskeið eru aldursskipt, oftast í 2–3 hópa, „við vinnum mikið með leikæfingar í smáum hópum.“

Coerver Iceland býður einnig upp á námskeið um allt land. „Ég hef farið hvert á land sem er,“ segir Heiðar, „ég hef til dæmis farið tvö ár í röð á Þórshöfn á Langanesi, ég var í Stykkishólmi um daginn, hef farið á Vopnafjörð, Laugar í Sælingsdal og Hólmavík  svo dæmi séu tekin.“

Í sumar fer Heiðar með fjögurra daga námskeið á Hvammstanga, Skagaströnd og Blönduós til að nefna nokkra staði. „Áhuginn og viðbrögðin hafa verið frábær. Og velgengni Íslands á EM og HM núna varð til að auka áhugann enn frekar. Það eru leikmenn á öllum færnistigum sem mæta og kennsluáætlunin verður því að henta öllum, þannig að allir, hvar sem þeir eru staddir færnislega, geti komið á námskeiðið og náð framförum og notið sín. Það er mest gaman fyrir alla og markmiðið er að allir njóti fótboltans betur.“

Um 30 námskeið hafa verið haldin á þessu fótboltaári, „sem er gott á okkar markaði,“ segir Heiðar, og hafa um 1.200 krakkar mætt á námskeiðin í ár, sem byrjar í ágúst og endar í lok júní.


Æfingaleikur milli Coerver Norge og Real Madrid í Madrid 2017.

Knattspyrnuárinu lýkur með fimm daga hátíð á Akureyri

Knattspyrnuárinu hjá Coerver Iceland lýkur í júní með alþjóðlegum knattspyrnubúðum á Akureyri, nánar tiltekið 18.–22. júní nk., og er þetta annað árið í röð sem þær eru haldnar. „Þarna er öllu tjaldað til og verður mikið um dýrðir,“ segir Heiðar. „Búðirnar eru í fimm daga, samtals 15 klst. af fótbolta, einnig verða fyrirlestrar á hverjum degi, haldnir af þar til gerðu fagfólki og einnig heitur matur fyrir iðkendur. Á þessu námskeiði erum við í samstarfi við Knattspyrnufélag Akureyrar og fer námskeiðið fram á KA-vellinum. Það verða þrír erlendir þjálfarar og við erum eini knattspyrnuskólinn á Íslandi sem býður upp á raunverulega akademíuþjálfara, það er þjálfara sem vinna með akademíuleikmönnum á hverjum degi í sínu starfi: einn kemur frá okkar akademíu, portúgalinn Jorge Augiar, og tveir enskir þjálfarar frá Newcastle Utd. En Coerver hefur átt í góðu samstarfi við knattspyrnuakademíu Newcastle Utd undanfarin ár og sér til að mynda um  þjálfaramenntun hjá félaginu. Einnig verðum við á námskeiðinu á Akureyri með þrjá íslenska Coerver Coaching þjálfara fyrir utan mig. Ég hvet alla til að skrá sig á vefslóðinni ka.felog.is.“


Frá alþjóðlegu knattspyrnubúðunum á Akureyri 2017.

Mikilvægt að börn fái færniþjálfun
Coerver er með eigin kennsluáætlun sem var gefin út árið 1997. „Það var kominn vísir að henni árið 1986, en hún kom út fullbúin árið 1997. Vel var vandað til verks og það er enginn annar með slíka kennsluáætlun. Fótbolti er bara skoðun og þetta er okkar skoðun,“ segir Heiðar og segir afar mikilvægt að börn fái færniþjálfun, sérstaklega undir 14 ára aldri.

„Við trúum því að allir aðrir þættir leiksins byggist á grunnfærninni, það er, ef hún er ekki til staðar þá komi það niður á öðrum þáttum leiksins seinna meir, svo sem taktík, einbeitingu og fleira. Allar æfingar og uppbygging æfinga eru töluvert öðruvísi en krakkarnir eru vanir, þær eru byggðar upp þannig að allir eru með bolta. Svo eykst erfiðleikastigið og við reynum að gera æfingarnar eins líkar leiknum og mögulegt er. Allt sem þau gera og læra er í beinni tengingu við það sem þau lærðu á undan. Coerver Coaching er fyrir alla og okkar mantra og hugmyndafræði er að allir eiga skilið góða þjálfun.“

Þjálfarar sækja líka námskeið hjá Coerver

Coerver hefur einnig haldið námskeið fyrir þjálfara, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. „Við höfum haldið þjálfaranámskeið fyrir  fjölmörg félög, til dæmis Breiðablik, Víking, Akranes, Fram, Selfoss, Vestra, Fjarðabyggð og tvö námskeið fyrir KSÍ, það hafa yfir 300 þjálfarar komið á námskeið hjá okkur. Þeir hafa verið frá meistaraflokki niður í yngstu flokka, frá mjög reyndum þjálfurum með  allar UEFA þjálfaragráðurnar, til þjálfara sem eru að stíga sín allra fyrstu skref í bransanum.

Coerver Coaching er fyrir alla og til að mynda eru okkar iðkendur frá byrjendum upp í afreksmenn og allt þar á milli. Við getum sniðið okkar æfingar að þörfum hvers og eins.

Til gamans má geta þess að leikmenn sem hafa komið til Coerver og æft með okkur eru farnir að vekja áhuga erlendra liða. Það eru til að mynda tveir strákar, sem voru að koma heim eftir að hafa spilað æfingamót með AC Horsens í Danmörku og stóðu sig gríðarlega vel. Einnig eru nokkrir farnir að fá leiki í Pepsi-deildinni sem voru duglegir að koma í öll prógrömmin okkar fyrstu 3–4 árin.  En við tölum  aldrei um að leikmaður sé Coerver leikmaður, nema viðkomandi hafi æft hjá okkur í langan tíma, en Arjen Robben er dæmi um einn,  og Robin Van Pierse annan, enda æfðu þeir með Coerver til margra ára.  Hinn norski Alexander Sørloth, sem leikur með Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni, var í þessum vikulegu námskeiðum í Noregi til margra ára og hefur opinberlega þakkað fyrir þá þjálfun sem hann fékk þar. Einnig er gaman að segja frá því að í japanska kvennalandsliðinu í dag eru að öllu jöfnu 4–5 byrjunarliðsmenn sem koma frá knattspyrnuskólunum okkar í Japan. En þar í landi fara krakkar ekki að æfa með félögum fyrr en um 14 ára aldur, og erum við með tæplega 30 akademíur í Japan.“


Coerver strákarnir Patrik og Númi eftir velheppnað æfingamót með AC Horsens á dögunum.


Við undirskrift á áframhaldandi samstarfi milli Coerver Coaching og Knattspyrnudeildar Breiðabliks: Sigurður Hlíðar Rúnarsson, verkefnastjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks og Heiðar Birnir Torleifsson, yirþjálfari og framkvæmdastjóri Coerver Coaching á Íslandi.

Allar frekari upplýsingar um Coerver eru á heimasíðunni: coerver.is.

Setja í box:
Ávinningur leikmanna:
-Eykur leikfærni óháð leikstöðu og getu í knattspyrnu
-Lærir færni bestu knattspyrnumanna heims
-Eykur hraða með og án bolta
-Nýtur fótboltans betur óháð eigin getu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum