
Á meðan Leifturdagarnir standa yfir fæst að minnsta kosti 25% afsláttur af nánast öllu á Boozt og því eru margir nú þegar byrjaðir að fylla körfurnar fyrir sumarið.
Fyrir þá sem vilja versla skynsamlega eru nokkur ráð sem gera innkaupin bæði fljótlegri og einfaldari.
Það getur verið svekkjandi að eyða tíma í að skoða vörur sem eru síðan uppseldar eða ekki til í réttri stærð. Því er mælt með að byrja strax á því að sía eftir stærðum áður en farið er í gegnum vörulistann. Þannig forðast fólk að falla fyrir kjólnum, jakkanum eða skónum sem ekki eru til.
Hér má sjá fallegar vörur á Leifturdögum.
Margir gera líka ráð fyrir að vörur séu fráteknar þegar þær fara í körfuna en svo er ekki.
Á Boozt eru vörur ekki tryggðar fyrr en greiðsluferlinu er lokið og því getur vinsæl vara horfið úr körfunni á örfáum mínútum ef einhver annar gengur frá kaupum á undan.
Þeir sem sjá eitthvað sem þeir vilja raunverulega eiga ættu því ekki að bíða of lengi.
Leifturdagarnir bera þess skýrt merki að sumarið sé að hefjast. Nú eru það léttir kjólar, stuttbuxur, gallajakkar, sumarskyrtur og léttar yfirhafnir sem fólk virðist helst sækjast eftir.
Þá eru margir líka að nýta afslættina til að kaupa vandaðar húðvörur og sólarvörn fyrir sumarið. Þó íslenska sumarið sé ekki alltaf þekkt fyrir steikjandi hita er sólin engu að síður sterk og þá sérstaklega á björtum dögum.
Leifturdagar Boozt eru orðnir fastur liður hjá mörgum sem vilja endurnýja fataskápinn án þess að tæma kortið alveg. En eins og nafnið gefur til kynna snýst þetta að miklu leyti um hraða. Þegar stærðir byrja að klárast og vinsælustu merkin hverfa af síðunni getur verið dýrt að ætla sér að „skoða þetta bara seinna“.
Hér að neðan má sjá brot af því sem er til sölu á Leifturdögum Boozt, þar á meðal eru stuttbuxur, jakkar og sumarlegir kjólar sem henta við mörg tækifæri:

Þessi glæsilegi sumarkjóll frá Vila er á 25% afslætti.

Þessi blái kjóll frá Day Birger et Mikkelsen er sérlega fallegur:


Gallastuttbuxurnar, eins og þessar frá Levi’s, koma sterkar inn í sumar:


Léttur jakki frá Selected sem kemur sér vel á svalari sumardögum:


Léttur og smart jakki frá Tommy Hilfiger. Rauði liturinn er sérstaklega flottur en jakkinn er einnig til svartur:

Rakagefandi sólarvörn frá Biotherm er á góðu verði á Leifturdögum:


