

Leit heldur áfram af frönskum ferðamanni sem féll niður um ísbrú og ofan í á við Sveinsgil seinnipartinn í gær. Nú er verið að skipta um mannskap, hvíla þá sem eru búnir að koma að aðgerðinni frá því snemma í morgun og nótt og fá úthvíldan hóp inn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Óskað hefur verið eftir fleira fólki frá björgunarsveitum frá Akranesi í vestri til Klausturs í austri og er verið að vinna í því.
Skipulag dagsins er að halda áfram að notast við keðju-og rafmagnssagir til að brjóta upp klaka og ís sem verður svo mokað í burtu til að komast niður að ánni og auðvelda leitina.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun einnig koma að leitinni í dag með því að aðstoða við að ferja fólk og búnað frá Landmannalaugum á slysstað.